

Sérfræðingur þjálfunar- og gæðamála
Við hjá Isavia leitum að öflugum sérfræðingi sem hefur metnað til að styðja við örugga, faglega og samræmda framkvæmd innan deilda sem sinna flugvernd í samræmi við gildandi reglur og gæðaviðmið.
Um starfið
Sérfræðingur í þjálfunar- og gæðamálum ber ábyrgð á skipulagi, samræmingu og eftirfylgni með þjálfun, gæðamálum og innra eftirliti innan deilda sem sinna flugvernd. Starfið felur í sér náið samstarf við vottaða leiðbeinendur, þjálfunarteymi og aðra lykilaðila innan starfseminnar, með það að markmiði að tryggja stöðugar umbætur og faglega framkvæmd flugverndar.
Helstu verkefni:
- Umsjón og utanumhald með þjálfun og innra eftirliti flugverndar
- Samræming og eftirfylgni með störfum vottaðra leiðbeinenda
- Skipulagning og samræming þjálfunar innan flugverndardeilda
- Þarfagreining á sviði þjálfunar- og gæðamála
- Umsjón með gæðamálum, gæðakerfum og eftirfylgni umbóta
- Undirbúningur, framkvæmd og eftirfylgni innra eftirlits
- Stuðningur við þróun og innleiðingu verklags og umbótaverkefna
- Virkt samstarf við þjálfunarteymi og aðra lykilaðila innan Isavia
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af þjálfunarmálum og/eða gæðastjórnun
- Þekking á regluverki og kröfum sem gilda um flugvernd eða sambærilega starfsemi
- Geta til að greina þjálfunar- og gæðatengdar þarfir og fylgja eftir umbótum
- Reynsla af vinnu með ferla, verklag og gæðakerfi
- Góð samskipta- og samhæfingarhæfni í samstarfi við ólíka hagaðila
- Sjálfstæð, skipulögð og fagleg vinnubrögð
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli.
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Umsóknarfrestur er til og með 4.maí 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veita Sigurpáll D. Eðvarðsson, deildarstjóri Eftirlits og Gátstöðva, í gegnum netfangið [email protected] og Guðmundur Skúlason, deildarstjóri Öryggisleitar, í gegnum netfangið [email protected].
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.
Íslenska
Enska










