Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Mannauðsráðgjafi

Við leitum að öflugum mannauðsráðgjafa sem hefur bæði brennandi áhuga á fólki og góðan skilning á tæknilausnum og stafrænni umbreytingu. Mannauðsráðgjafar hjá Isavia eru lykilaðilar í að styðja stjórnendur og starfsfólk í daglegum verkefnum sem snúa að mannauðsmálum og fyrirtækjamenningu.

Við leitum að einstaklingi til að styrkja teymið sem mun jafnframt taka virkan þátt í að þróa og innleiða stafrænar lausnir innan mannauðs, með það að markmiði að bæta upplifun starfsfólks og auka skilvirkni.


Í mannauðsteymi Isavia starfar öflugt teymi sem leggur sitt af mörkum til að skapa vinnustað sem er áhugaverður og líflegur en á sama tíma öruggur, þar sem bæði stjórnendur og starfsfólk láta sig vellíðan hvers annars varða.


Umsækjendur þurfa að hafa gaman af teymisvinnu og hafa leikgleðina að leiðarljósi


Helstu verkefni

  • Ráðgjöf og þjónusta við stjórnendur og starfsfólk vegna mannauðsmála
  • Umsjón með og þátttaka í ráðningum og móttöku nýs starfsfólks
  • Verkefnastjórnun mannauðstengdra verkefna
  • Leiðandi hlutverk í umbótaverkefnum tengdum stafrænum lausnum
  • Ýmis mannauðstengd verkefni í samvinnu við mannauðsstjóra og mannauðsteymi


Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er kostur
  • Starfsreynsla á sviði mannauðsmála
  • Sterk tæknileg þekking og reynsla af sjálfvirknivæðingu og ferlum
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og drifkraftur til að hrinda hugmyndum í framkvæmd
  • Umbótamiðuð hugsun og framsýni
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku er skilyrði


Starfsstöð er í Hafnarfirði og á Keflavíkurflugvelli


Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.


Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.


Umsóknarfrestur er til og með 2. maí 2026.


Frekari upplýsingar um starfið veitir Brynjar Már Brynjólfsson í gegnum netfangið [email protected].


Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi til starfsins út frá helstu verkefnum og hæfniskröfum.


Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Auglýsing birt16. apríl 2026
Umsóknarfrestur3. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalshraun 3, 220 Hafnarfjörður
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar