

Rafvirki farangurskerfis
Viltu gegna lykilhlutverki í því að tryggja öruggan og hnökralausan rekstur stærsta flugvallar landsins? Við leitum að lausnamiðuðum og þjónustuliprum rafvirkja til að starfa við farangurskerfið á Keflavíkurflugvelli.
Í þessu starfi færð þú tækifæri til að sinna mikilvægum þáttum í rekstri flugstöðvarinnar með fókus á öryggi, áreiðanleika og tæknilega færni.
Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia. Þar að auki bjóðum við upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að velferðarþjónustu og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Helstu verkefni:
- Viðhald farangurskerfis og gegnumlýsingavéla samkvæmt viðhaldsáætlun
- Reglulegt eftirlit með farangurskerfi og gegnumlýsingabúnaði
- Bilanagreining og þátttaka í úrlausn bilana
- Þrif og umhirða á búnaði
- Skráning viðhaldssögu og tilkynningar um notkun varahluta
- Stuðningur við uppsetningu og innleiðingu eigna
- Þátttaka í viðhaldi annarra eigna eftir þörfum
- Samskipti við afgreiðsluaðila og samstarfsaðila
- Önnur tilfallandi verkefni í tengslum við rekstur og öryggi búnaðar
Hæfniskröfur:
- Sveinspróf í rafvirkjun eða sambærileg menntun/reynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla af iðnstýringum
- Jákvætt viðhorf, góð samskiptafærni og þjónustulund
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Frumkvæði, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
- Góð almenn tölvukunnátta
- Vilji til að taka þátt í bakvöktum þegar reynsla hefur byggst upp
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Umsóknarfrestur er til og með 19.apríl 2026.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Skúli Pálsson, [email protected].
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.
Íslenska
Enska










