

Mannauðsráðgjafi - sumarstarf
Kópavogsbær leitar eftir mannauðsráðgjafa í sumarstarf
Skrifstofa mannauðs- og kjaramála Kópavogsbæjar er stefnumarkandi og ráðgefandi í mannauðs- og kjaramálum þvert á fagsvið og skrifstofur bæjarfélagsins. Undir skrifstofuna heyrir mannauður og launadeild.
Hlutverk mannauðs er að vera stefnumarkandi í mannauðsmálum og ráðgefandi gagnvart stjórnendum með það að markmiði að byggja upp faglega og réttsýna mannauðsstjórnun, tryggja rétta stjórnsýslu, samræma verklag og efla skilvirkni og gæði í mannauðsmálum. Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið; menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið. Þar að auki eru fimm skrifstofur; skrifstofa mannauðs- og kjaramála, skrifstofa bæjarritara, skrifstofa áhættu- og fjárstýringar, skrifstofa umbóta og þróunar og skrifstofa þjónustu.
Kópavogsbær er annað stærsta sveitarfélag landsins. Heildarstarfsmannafjöldi er að öllu jöfnu um 3000. Sumarstarfsmaður mun fá tækifæri til að kynnast fjölbreyttum mannauðsmálum á víðtækum grunni og því er um gott tækifæri að ræða fyrir rétta aðilann.
- Þátttaka í almennri ráðgjöf á sviði mannauðsmála
- Yfirferð starfslýsinga Kópavogsbæjar
- Samræming starfsauglýsinga þvert á svið og skrifstofur Kópavogsbæjar
- Þátttaka í kortlagningu og greiningu á fræðslu- og þjálfunarþörfum
- Þátttaka í þróun og aðlögun fræðsluefnis fyrir stafræna miðlun
- Ýmis umbótaverkefni á sviði mannauðs- og kjaramála
- Háskólamenntun (BS, BA, BEd) sem nýtist í starfi, s.s. á sviði viðskipta, sálfræði eða sambærilegs
- Framhaldsmenntun í mannauðsstjórnun eða sambærilegu – námi þarf ekki að vera lokið en þó a.m.k. hálfnað
- Áhugi á sviði fræðslumála og inntaki starfa þ.e. sem snýr að starfslýsingum er skilyrði
- Reynsla af stafrænu fræðslukerfi og/eða hönnun fræðsluefnis er kostur
- Reynsla af mannauðsmálum er kostur
- Góð reynsla og færni í verkefnastjórnun er mikill kostur
- Mjög góð íslenskukunnátta og færni í ritun texta
- Mjög góð tölvufærni
- Reynsla af stafrænni miðlun er kostur
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæði í vinnubrögðum
36 klukkustunda vinnuvika
Íslenska

