EMC markaðsrannsóknir
EMC markaðsrannsóknir

Sérfræðingur í markaðsrannsóknum og samfélagsmiðlum

EMC markaðsrannsóknir leitar að öflugum og skapandi einstaklingi til að leiða uppbyggingu og utanumhald svarendahóps fyrirtækisins og styrkja sýnileika og ásýnd fyrirtækisins á markaði.

Starfið er fjölbreytt og krefst bæði skipulagshæfni, frumkvæðis og greiningargetu. Um er að ræða lykilhlutverk þar sem unnið er markvisst að því að efla tengsl við þátttakendur, hámarka þátttöku í rannsóknum, greina niðurstöður og þróa faglega viðveru fyrirtækisins á stafrænum miðlum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sýnileiki og stafrænir miðlar:

  • Móta og þróa ásýnd, tón og framsetningu fyrirtækisins á samfélagsmiðlum.
  • Skipuleggja og framleiða efni fyrir stafræna miðla með það að markmiði að hámarka vitund og þátttöku.
  • Þróa og hrinda í framkvæmd aðgerðum sem efla sýnileika og styrkja vörumerkið.
  • Greina árangur miðlunar og leggja til umbætur á grundvelli gagna.

Svarendahópur og þátttakendasamskipti:

  • Yfirumsjón með svarendahóp fyrirtækisins.
  • Hámarka skráningu nýrra þátttakenda og tryggja þátttöku ólíkra markhópa.
  • Viðhalda góðri svörun og virkni í könnunum.
  • Þróa og halda utan um umbunarkerfi svarendahóps.
  • Byggja upp og viðhalda tengsl við þátttakendur.
  • Greina gögn um virkni svarendahóps og nýta niðurstöður til umbóta.

Önnur störf:

  • Greining og miðlun rannsóknarniðurstaðna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi (t.d. markaðsfræði, viðskipti, miðlun eða félagsvísindi).
  • Reynsla af samfélagsmiðlum, efnisgerð eða stafrænum miðlum.
  • Mjög góð færni í textagerð á íslensku og góð enskukunnátta.
  • Góð skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni.
  • Greiningarhæfni og geta til að vinna með gögn.
Auglýsing birt16. apríl 2026
Umsóknarfrestur3. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Bjargargata 1, 102 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GreinaskrifPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MarkaðsgreiningPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.MarkaðsrannsóknirPathCreated with Sketch.Markaðssetning á netinuPathCreated with Sketch.RannsóknirPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skilgreining markhópaPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SkýrslurPathCreated with Sketch.TextagerðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vinnsla rannsóknargagnaPathCreated with Sketch.Vörumerkjastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar