

Sérfræðingur við Rannsóknasetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum
Háskólinn á Bifröst auglýsir eftir sérfræðingi til starfa við Rannsóknasetur í byggða- og sveitarstjórnarmálum vegna aukinna umsvifa. Starfshlutfall getur verið frá 50% eða eftir nánara samkomulagi. Starfið er skilgreint sem starf án staðsetningar en háskólinn hefur starfsstöðvar bæði í Reykjavík og á Hvanneyri. Ráðið er í starfið til eins árs og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Rannsóknarsetur í byggða- og sveitastjórnarmálum var stofnað í janúar 2023 og er það starfrækt innan viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst. Markmið með stofnun þess var að efla jákvæða byggðaþróun og styrkja sveitastjórnarstigið á Íslandi með markvissum rannsóknum, sem stuðla að hlutlægri og faglegri umræðu og jafnframt að leiða til betri stefnumótunar og ákvarðanatöku.
- Greiningar og mótun nýrra rannsóknarverkefna
- Uppbygging tengslanets í rannsóknum
- Gerð umsókna í rannsóknasjóði og er vægi starfsins mikið á þennan lið
- Vinna við einstök rannsóknaverkefni
- Tilheyrandi greinaskrif og útgáfa greina
- Kynningar á niðurstöðum rannsókna
- Ráðgjöf við hagaðila um hagnýtingu á niðurstöðum rannsókna
- Þátttaka í ráðstefnum sem tengjast viðfangsefnum setursins
- Reynsla af gerð styrkumsókna er mikill kostur
- Meistaragráða sem nýtist í starfi
- Tölfræðikunnátta og færni í öðrum magnbundnum aðferðum
- Reynsla af vinnu við rannsóknir og greinaskrif
- Hæfni til að greina og túlka gögn
- Góð samskiptafærni og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Reynsla af háskólakennslu er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæði við vinnslu verkefna
- Góð íslensku- og enskukunnátta, annað Norðurlandamál er æskilegt
Íslenska
Enska

