Sameyki
Sameyki
Sameyki

Upplýsingafulltrúi

Sameyki – stéttarfélag í almannaþjónustu – óskar eftir að ráða metnaðarfullan og skapandi upplýsingafulltrúa til starfa. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á samfélagsmálum og býr yfir sterkri samskipta- og miðlunarhæfni. Um er að ræða fjölbreytt og áhrifamikið starf fyrir einstakling sem vill taka virkan þátt í að móta ímynd félagsins, efla sýnileika þess og tryggja gott upplýsingaflæði til félagsfólks og almennings. Upplýsingafulltrúi vinnur náið með formanni, framkvæmdastjóra og teymi félags-, kynningar- og fræðslumála.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stefnumótun í upplýsingagjöf í samvinnu við formann og framkvæmdastjóra
  • Umsjón með fréttum á vef og samfélagsmiðlum Sameykis (t.d. Facebook og Instagram)
  • Samskipti við fjölmiðla og þátttaka í opinberri umræðu
  • Greina- og fréttaskrif fyrir tímarit Sameykis og fjölmiðla
  • Ritstjórn og útgáfa tímarits Sameykis, veffréttabréfs og annarra rita, s.s. ársskýrslu
  • Verkstjórn við gerð ársskýrslu
  • Vöktun samfélagsmiðla og greining á umræðu
  • Ráðgjöf og þátttaka í grafískri framsetningu efnis fyrir vef- og prentmiðla
  • Umsjón með stafrænu mynda- og myndbandasafni Sameykis
  • Þátttaka í teymisvinnu vegna sérstakra verkefna, s.s. Stofnun ársins og aðalfunda
  • Önnur verkefni eftir því sem þörf krefur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólanám eða sambærileg menntun, þekking og starfsreynsla sem nýtist í starfi
  • Mjög góð tölvukunnátta
  • Mjög góð þekking á upplýsingamálum, fréttaritun, vefmiðlum og útgáfustarfsemi
  • Reynsla af starfi fyrir fjölmiðla er mikill kostur
  • Afburða hæfni í rituðu og töluðu máli á íslensku og mjög góð kunnátta í ensku
  • Frumkvæði, sjálfstæði og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Fríðindi í starfi

Við bjóðum:

  • Fjölbreytt starf hjá öflugu stéttarfélagi
  • Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á ímynd og umræðu um málefni almannaþjónustu
  • Gott samstarf og teymisvinnu
  • Starf sem krefst frumkvæðis, sköpunar og fagmennsku
Auglýsing birt1. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Grettisgata 89, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar