

Verkefnastjóri fræðslu og miðlunar
Sláturhúsið menningarmiðstöð auglýsir eftir starfsmanni í nýja stöðu verkefnastjóra fræðslu og miðlunar. Starfshlutfall er 50% Starfið er laust nú þegar og upphaf starfs er samkomulagsatriði.
Helstu verkefni eru að móta og hafa umsjón með fræðslustarfi stofnunarinnar, taka á móti hópum og sjá um kynningarmál stofnunarinnar.
Sláturhúsið er sviðslistamiðstöð Austurlands og á næstu árum verður unnið að frekari mótun verkefna miðstöðvarinnar, meðal annars listamannadvöl og þróunarstarfi innan sviðslista. Viðkomandi starfsmaður mun taka þátt í þeirri stefnumótun og því æskilegt að viðkomandi hafi einhverja reynslu af slíkri vinnu.
Gera má ráð fyrir að vinnutími sé stundum á kvöldin eða um helgar.
Næsti yfirmaður er forstöðumaður Sláturhússins menningarmiðstöðvar
-
Umsjón með fræðslustarfi Sláturhússins
-
Gerð fræðsluefnis um sýningar Sláturhússins í samstarfi við listafólk.
-
Móttaka skólahópa og annarra hópa.
-
Umsjón með kynningarmálum Sláturhússins, þar með talið vef og samfélagmiðlum í samstarfi við forstöðumann
-
Undirbúningur og hugmyndavinna í tengslum við BRAS, menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi og seta í stýrihópi hátíðarinnar fyrir hönd Sláturhússins.
-
Aðstoð og stuðningur við uppsetningu sýninga, undirbúning viðburða og önnur tilfallandi verkefni í Sláturhúsinu.
-
Þáttaka í þróun og mótun verkefna Sláturhússins.
-
Aðstoð við listafólk í vinnustofudvöl
-
Gerð er krafa um grunn háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. í sviðslistum eða öðrum listgreinum, menningarmiðlun eða verkefnastjórn.
-
Reynsla af vinnu við lista- og eða menningarstofnanir er mikilvæg.
-
Reynsla af kynningarmálum er mikilvæg.
-
Gott vald á íslensku og ensku er skilyrði, bæði talmáli og ritmáli.
-
Góð almenn tölvukunnátta.
-
Reynsla af umsóknarvinnu í innlenda sem erlenda sjóði er æskileg.
-
Nákvæmni, samviskusemi og góð samskiptafærni.
-
Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði
-
Gerð er krafa um hreint sakavottorð.
Enska
Íslenska



