
Sala og skipulagning ferða (maí - sept)
Iceland Outfitters er ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í veiðiferðum, við rekum stórt veiðihús við Ytri Rangá sem er ein besta laxveiðiá landsins. Við leitum að metnaðarfullri og ábyrgri manneskju með gott vald á íslensku og ensku.
- Vinsamlegast athugið að reynsla af skipulagningu og sölu er nauðsynleg.
- Meðmæli frá fyrri atvinnurekanda eru nauðsynleg
- Ekki er hægt að fá frí í júní - ágúst, þar sem það er mesti álagstíminn okkar.
- Aldurstakmark 22 ár
Vinnan er lifandi og fjölbreytt.
Vinsamlegast látið fylgja umsókninni upplýsingar um meðmælendur á fyrri vinnustað.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Samskipti við viðskiptavini og leiðsögumenn
- Sala ferða
- Sala gistingar
- Skipulag ferða og gerð ferðalýsinga
- Birta efni á samfélagsmiðlum
- Innheimta og einföld bókhaldsvinna
- Almenn skrifstofustörf
- Halda utan um dagsferðir og undirbúa búnað fyrir þær
- Útréttingar þegar þess gerist þörf
Hæfniskröfur
- Skipulagshæfileikar og góð yfirsýn
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Rík þjónustulund
- Almenn tölvukunnátta, email, word, exel skilyrði. Kostur ef reynsla af wordpress og bókhaldskerfum, t.d. DK og bókun.
- Góð almenn þekking og skilningur á samfélagsmiðlum, facebook og instagram.
- Reynsla af ferðaskrifstofustörfum og skilningur á ferðaþjónustu
Auglýsing birt6. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hrauntunga 81, 200 Kópavogur
Rangá 165412, 851 Hella
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiDKFagmennskaFljót/ur að læraFrumkvæðiHeiðarleikiHreint sakavottorðJákvæðniMetnaðurReyklausSkipulagSnyrtimennskaSölumennska
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Ert þú Excel týpa?
Beautybox

Gjaldkeri
Eignaumsjón hf

Þjónustufulltrúi
Norðurorka hf.

Tryggingaráðgjafi á Selfossi
Landsbankinn

Skipaeftirlitsmaður
Samgöngustofa

Almenn umsókn hjá Fagkaupum
Fagkaup ehf

Sumarstarf í hringiðu nýsköpunar á Íslandi?
KLAK - Icelandic Startups

Viðburða- og verkefnastjóri knattspyrnudeildar Hauka
Knattspyrnufélagið Haukar

Fulltrúi í bókhald - Sumarstarf
Íslandshótel

Skrifstofustarf.Tölvukunnátta,Skipulag og Gagnafærsla í Excel. Payday og Monday, Hlutastarf
Next Level Smíði ehf.

Ábyrgðarfulltrúi
Bílaumboðið Askja

Skólaritari óskast til starfa
Waldorfskólinn í Lækjarbotnum