
Icelandia
Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun.
Undir vörumerki Icelandia starfa:
Almenningsvagnar Kynnisferða
Dive.is
Flybus
Garðaklettur
Hópbifreiðar Kynnisferða
Icelandic Mountain Guides
Reykjavik Excursions
Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
Almenningsvagnar Kynnisferða eiga 58 strætisvagna og sjá um viðhald og rekstur þeirra. Félagið sinnir akstri á 11 leiðum fyrir Strætó bs á höfuðborgarsvæðinu.
Dive.is sérhæfir sig í köfunar- og snorklferðum í Silfru auk þess að vera fimm stjörnu PADI köfunarskóli.
Flybus býður upp á akstur á milli Reykjavíkur og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Garðaklettur á og sér um viðhald og rekstur á dráttarbílum ásamt því að sinna vörubílaakstri.
Hópbifreiðar Kynnisferða heldur utan um rekstur hópbifreiða af öllum stærðum.
Icelandic Mountain Guides hafa verið í fararbroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja á sviði afþreyingar, göngu- og fjallaferðum og bjóða meðal annars upp á fjórhjólaferðir, jöklaferðir og styttri og lengri gönguferðir.
Reykjavik Excursions er eitt elsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins og býður upp á dagsferðir í Bláa Lónið, Gullna hringinn, Jökulsárlón, norðurljósa ferðir og margt fleira.
Icelandia leitar að áhugasömu starfsfólki sem nýtir þekkingu og reynslu í daglegum störfum í jákvæðu starfsumhverfi.
Fyrirtækið er ISO 14001 vottað og er það markmið okkar að nálgast náttúruna með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.

Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu
Ertu árangursdrifinn, hugmyndaríkur einstaklingur og með brennandi áhuga á stafrænni markaðssetningu? Icelandia leitar að öflugum og reynslumiklum einstaklingi til að ganga til liðs við metnaðarfullt markaðsteymi sitt.
Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðafólki með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með og bestun stafrænna auglýsingaherferða, t.d. á Google Ads, Meta Ads og Microsoft Ads, í samstarfi við auglýsingastofur og samstarfsaðila.
- Uppsetning og framkvæmd árangursríkra tölvupóstaherferða fyrir bæði B2C og B2B markað.
- Samskipti og eftirfylgni við auglýsingastofur og samstarfsaðila — þar sem viðkomandi tekur leiðandi stöðu og gerir kröfur til gæðastarfs.
- Verkefnastjórn á sviði markaðssetningar í samstarfi við teymið.
- Þétt samstarf við vef- og samfélagsmiðlateymi til að tryggja samræmda og árangursríka miðlunarstefnu.
- Eftirfylgni með áætlunum, regluleg greining gagna og skýrslugerð til að styðja við stefnumótun.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Haldbær reynsla úr sambærilegu starfi í stafrænni markaðssetningu og/eða nám sem nýtist vel í starfi.
- Þekking og reynsla af Google Ads og Meta Business Suite o.fl.
- Reynsla af email marketing tólum (t.d. Mailchimp, Klaviyo eða sambærilegum).
- Þekking á vefgreiningartólum (Google Analytics, Tag Manager o.fl.).
- Sterk greiningarhæfni og færni í að vinna með mælingar og KPI.
- Skapandi hugsun og hæfni til að prófa nýjar nálganir.
- Leiðtogahæfni í samskiptum við birgja og stofur – geta til að gera skýrar kröfur og tryggja árangur.
- Góð færni á íslensku og ensku.
- Skipulögð, lausnamiðuð og árangursdrifin vinnubrögð og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymi.
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni í öflugu markaðsteymi.
- Sveigjanleiki í vinnuumhverfi og framúrskarandi starfsandi.
- Líkamsræktarstyrkur, sálfræðistyrkur og möguleikar á símenntun.
Auglýsing birt30. mars 2026
Umsóknarfrestur13. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Email markaðssetningFacebookFrumkvæðiGoogleGoogle AnalyticsMailchimpMarkaðssetning á netinuSkipulagTeymisvinnaVerkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (10)

Sölu- og markaðsfulltrúi
Nostra

Sérfræðingur í efnissköpun og markaðssetningu
Hreyfing

Samfélagsmiðlafulltrúi
Hér&Nú

Samfélagsmiðla leiðtogi (Head of Social)
Hér&Nú

Sumarstarfsmaður í ferðaþjónustu hjá Hafnarfjarðarhöfn
Hafnarfjarðarbær

Markaðsfulltrúi Flóra Hotels
Flóra Hotels

Sales & Marketing Manager – Kombucha Iceland
Kúbalúbra ehf.

Verkefnastjóri fræðslu og miðlunar
Sláturhúsið menningarmiðstöð

AI-Driven Growth Marketing Manager
PLAIO

Markaðsstjórn með áherslu á leitarvélabestun, netauglýsingar og samfélagsmiðla
Þorbergsson og Loftsdóttir sf.