Icelandia
Icelandia
Icelandia

Vagnstjóri - Sumar 2026

Við leitum að ábyrgum vagnstjórum með sterka þjónustulund til fullt starf eða hlutastarf* við akstur almenningsvagna sumarið 2026. Starfið krefst mikillar fagmennsku og öryggisvitundar, en umfram allt vinalegrar og jákvæðrar framkomu gagnvart öllum hópum samfélagsins — allt frá vönum farþegum til nýrra farþega á leið í vettvangsferð.

You can find a job description in English by clicking „Sækja um“.

Starfið er í boði frá apríl og fram í september, með möguleika á framlengingu.

Almenningsvagnar Kynnisferða starfa undir vörumerkinu Icelandia, sem er leiðandi fyrirtæki í ferðaþjónustu á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 starfsmenn sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.

*Hlutastarf er í boði á virkum dögum frá 06:00-10:00 eða 13:00-19:00.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Akstur almenningsvagna og aðstoð við farþega.
  • Daglegt eftirlit með ástandi og hreinlæti ökutækja.
  • Vinna samkvæmt umhverfis-, öryggis- og gæðastöðlum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gild ökuréttindi í flokki D og ökuréttindaflokki 95.
  • Reynsla af akstri hópbíla.
  • Hreint sakavottorð.
  • Góð enskukunnátta í töluðu máli, að lágmarki á stigi B2.
  • Að vera fyrirmyndarbílstjóri; öryggis- og þjónustumiðaður með góða samskiptahæfni.
  • Geta og vilji til að starfa í fjölmenningarlegu umhverfi.
  • Reglusemi og stundvísi.
  • Jákvætt viðhorf, dugnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og spennandi verkefni í vaxandi og faglegu starfsumhverfi.
  • Tækifæri til vaxtar.
Auglýsing birt26. mars 2026
Umsóknarfrestur30. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Meirapróf DPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar