
Sérfræðingur í efnissköpun og markaðssetningu
Hreyfing leitar að skapandi og metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á heilsu og heilbrigðum lífsstíl í stöðu sérfræðings í efnissköpun og markaðssetningu.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að skapa efni fyrir fjölbreytta miðla og hefur gaman af því að vinna með texta, myndir og video. Starfið felur í sér að taka þátt í að móta hvernig Hreyfing birtist fólki á mismunandi miðlum og miðla því sem er að gerast í starfinu á lifandi og aðgengilegan hátt.
Verkefnin væri til að mynda:
- Umsjón með og framleiðsla á bæði stafrænu og prentuðu efni, þ.m.t. auglýsingar, samfélagsmiðlaefni, kynningarefni, lendingarsíður og efni fyrir vefsíðu.
- Mikil áhersla er lögð á efnissköpun fyrir samfélagsmiðla og gerð video efnis.
- Umsjón með hugmyndavinnu fyrir alla miðla fyrirtækisins í samráði við forstöðumann markaðs- og sölumála.
- Aðkoma að þróun markaðssetningar og miðlunar.
- Þátttaka í innri og ytri markaðsaðgerðum, herferðum og viðburðum.
- Umsjón með og þróun á markpóstakerfi í samráði við forstöðumann markaðs- og sölumála.
- Stuðla að aukinni sölu.
Við erum að leita að manneskju sem:
- Hefur reynslu af því að vinna efni fyrir samfélagsmiðla frá grunni.
- Hefur brennandi áhuga á heilsu og heilbrigðum lífsstíl.
- Hefur metnað fyrir markaðs- og sölustarfi.
- Er skapandi og árangursdrifin.
- Býr yfir afburða góðri íslensku- og enskukunnáttu í töluðu og rituðu máli.
Hreyfing er leiðandi fyrirtæki á heilsuvettvangi staðsett í Glæsibæ þar sem áhersla er lögð á hreyfingu, vellíðan og góða þjónustu. Hjá Hreyfingu starfar metnaðarfullur hópur fólks sem hefur brennandi áhuga á heilsu og því að skapa jákvætt og hvetjandi umhverfi fyrir meðlimi sína og samstarfsfólk.
Umsóknarfrestur er til 30. mars 2026.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Einnig skal benda á hlekki í kynningarbréfi sem beina lesanda á video eða annað samfélagsmiðlaefni sem umsækjandi hefur framleitt.
Umsjón með umsóknum hafa Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]) og Garðar Ó. Ágústsson ([email protected]) hjá Vinnvinn.
Enska
Íslenska










