
Sýn
Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.

Fréttamaður á fréttastofu Sýnar
Við leitum að öflugum fréttamanni í sumarstarf á fréttavef okkar Vísi. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu og unnið aðra hverja helgi. Líklegt er að eftir sumarið verði í boði hlutastarf sem hentar vel með námi.
Á fréttastofunni starfar samhentur hópur fólks sem hefur mikinn áhuga á málefnum líðandi stundar og metnað fyrir vönduðum fréttaflutningi. Fréttir eru unnar í fjölbreyttri framleiðslu sem einkennist af frumkvæði, sköpunarkrafti og áræðni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Brennandi áhugi á fréttum og þekking á samfélaginu
- Reynsla af blaða- og fréttamennsku er æskileg
- Mjög gott vald á íslenskri tungu, bæði í ræðu og riti
- Geta til að vinna hratt og örugglega undir álagi
- Hæfni í mannlegum samskiptum og öryggi í framkomu
Fríðindi í starfi
Hvað höfum við að bjóða þér?
- Frábæra vinnufélaga
- Framúrskarandi vinnuaðstöðu
- Spennandi verkefni
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
- Möguleika á starfsþróun
- Mötuneyti á heimsmælikvarða
- Internet- og farsímaáskrift
- Streymisveitu Sýnar og Viaplay
- Árlegan heilsustyrk
- Árlegan símtækjastyrk
- Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
- Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Auglýsing birt23. mars 2026
Umsóknarfrestur6. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Greinaskrif
Starfsgreinar
Starfsmerkingar