Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið

Leitar þú að starfi þar sem enginn dagur er eins?

Dómsmálaráðuneytið leitar af öflugum og drífandi upplýsingafulltrúa á skrifstofu yfirstjórnar. Skrifstofan ber ábyrgð á stefnumótun, stjórnun og samhæfingu á starfsemi ráðuneytisins í heild.

Helstu verkefni og ábyrgð

Upplýsingafulltrúi ber ábyrgð á upplýsingagjöf ráðuneytisins til fjölmiðla og er stjórnendum ráðuneytisins innan handar í samskiptum við þá. Starfið felur í sér gerð fréttatilkynnninga, umsjón með kynningarefni, fjölmiðlafundum og stærri viðburðum og ritstjórn á vef ráðuneytisins. Markmiðið er að tryggja rétta og skýra upplýsingagjöf í samstarfi við ráðherra, aðstoðarmenn og starfsfólk ráðuneytisins.  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þekking á málefnasviðum ráðuneytisins. 
  • Þekking og reynsla af starfi í fjölmiðlum og þeirra starfsemi.  
  • Þekking og reynsla af vefumsjónarkerfum. 
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.   
  • Hæfni til að skrifa skýran og hnitmiðaðan texta um flókin álitaefni.  
  • Geta til að vinna á faglegan og skilvirkan hátt undir álagi.  
  • Góð samskiptahæfni, jákvæðni og metnaður til að ná árangri í starfi.  
  • Frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.  
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. 
Auglýsing birt15. júní 2026
Umsóknarfrestur25. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skúlagata 4, 101 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar