
Klíníkin Ármúla ehf.
Klíníkin er sérhæfð lækninga- og heilsumiðstöð og er staðsett í Ármúla 9, 108 Reykjavík. Við Klíníkina starfa þrautreyndir sérfræðilæknar og hjúkrunarfræðingar sem öll leggja sig fram við að veita persónulega þjónustu og hafa skjólstæðinga sína ávallt í öndvegi. Markmið Klíníkurinnar er að greina vanda, ráðleggja um leiðir til lausna og framkvæma nauðsynlegar aðgerðir. Samstarf reyndra lækna og hjúkrunarfræðinga með mikla starfsreynslu hérlendis og erlendis tryggir gæði þjónustunnar og öryggi sjúklinga. Aðbúnaður er til fyrirmyndar í Klíníkinni hvort sem um er að ræða læknamóttöku eða á skurðstofum og er mikil áhersla lögð á að tækjabúnaður uppfylli ströngustu kröfur á alþjóðlegan mælikvarða. Hugmyndafræði Klíníkurinnar byggist á teymisvinnu og því að sinna sérþörfum sjúklinga og veita heildarþjónustu frá greiningu, skurðaðgerð og þar til annari meðferð lýkur.
Hjúkrunarfræðingur Meltingarklíníkin
Klíníkin stækkar – leitum að metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum á Meltingarklíníkina!
Klíníkin Ármúla hefur nýverið tekið í notkun nýtt og glæsilegt húsnæði sem býður upp á frábæra aðstöðu fyrir sjúklinga og starfsfólk. Á næstu mánuðum stendur til að opna fleiri speglunarstofur og því vantar okkur öfluga hjúkrunarfræðinga í okkar teymi!
Um starfið
- Starfshlutfall: 80-100%, eða eftir samkomulagi
- Vinnutími: Dagvinna virka daga.
- Ráðning er hugsuð til lengri tíma
Helstu verkefni og ábyrgð
- Undirbúningur skjólstæðinga fyrir speglun
- Hjúkrun í speglun
- Eftirfylgni eftir speglun
- Þrif og umsjón með speglunartækjum
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Skipulagshæfileikar og frumkvæði
- Rík þjónustulund
- Góð samskiptahæfni
- Sveigjanleiki
- Rösk og fagleg vinnubrögð
- Teymisvinna
Auglýsing birt26. október 2025
Umsóknarfrestur7. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁreiðanleikiDrifkrafturFagmennskaFrumkvæðiHjúkrunarfræðingurHreint sakavottorðMannleg samskiptiReyklausSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSveigjanleikiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Ert þú hjúkrunarfræðingurinn sem við leitum eftir!
Landspítali

Hjúkrunarnemar 3. og 4. árs á hjarta-, lungna- og augnskurðdeild og nýrnalækningadeild
Landspítali

Sjúkraliðar á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur Skjólgarði, Hornafirði
Skjólgarður hjúkrunarheimili

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hamraborg
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur óskast á heilsugæslustöðvar HVE í Ólafsvík og Grundafirði
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Hjúkrunarfræðingur á HVE, heilsugæslan í Borgarnesi
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Hjúkrunarfræðingar á hjúkrunarheimili HVE Hvammstanga
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Hjúkrunarfræðingur á stofu munn- og kjálkaskurðlækna
Breiðaklöpp

Aðstoðardeildarstjóri á Skjóli, blundar í þér stjórnandi?
Skjól hjúkrunarheimili

Leiðbeinandi - viltu hjálpa fólki að losna við verki?
OsteoStrong

Hjúkrunarfræðingur á ferð og flugi um borgina
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið