

Hjúkrunarfræðingur á líknardeild aldraðra
Við sækjumst eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa sem hefur áhuga á öldrunarhjúkrun, umbótastarfi og þverfaglegu samstarfi. Starfið hentar vel þeim sem vilja vaxa í starfi, þróa faglega sýn í hlýlegu starfsumhverfi.
Líknardeild aldraðra L5 er staðsett á Landakoti, í hjarta Reykjavíkur. Deildin er 9 rúma og er blönduð deild sem er bæði líknardeild sem sérhæfir sig í meðferð og hjúkrun sjúklinga sem eru 67 ára og eldri með langt gengna sjúkdóma en einnig biðrými fyrir sjúklinga með gilt færni- og heilsumat sem bíða eftir vistun á hjúkrunarheimili.
Upphaf starfa og starfshlutfall er samkvæmt nánara samkomulagi. Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Hjördísi Halldóru, deildarstjóra.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Íslenska











































