
Kópavogslaug
Kópavogslaug hefur um árabil verið ein vinsælasta sundlaug landsins síðastliðin ár og er einn stærsti sundstaður höfuðborgarsvæðisins. Hjá lauginni starfa rúmlega 35 mannsvið þjónustustörf, þrif og öryggisgæslu. Sundlaugarnar eru fjórar, ein 50 m útilaug og 25 m innlaug sem báðar er hægt að nýta í keppni, minni innanhúss kennslulaug auk rennibrautarlaugar. Sjö heitir pottar eru dreifðir um svæðið. Einnig er eimbað á svæðinu og kaldur pottur. Heilsuræktarstöð er í kjallara sundlaugarinnar. Sundlaugin er við Borgarholtsbraut 17.

Forstöðumaður Kópavogslaugar - afleysing
Kópavogslaug er ein vinsælasta sundlaug landsins og mikilvægur samkomustaður fyrir íbúa og aðra gesti á öllum aldri. Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum leiðtoga í starf forstöðumanns laugarinnar.
Starfið felur í sér yfirumsjón með daglegum rekstri, fjármálum, mannauðsmálum, öryggismálum og þjónustu við gesti. Forstöðumaður leiðir starfsemi laugarinnar í nánu samstarfi við deildarstjóra íþróttadeildar og aðra hagaðila.
Um er að ræða tímabundið starf í 6 mánuði með möguleika á framlengingu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf eins fljótt og auðið er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ber ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi Kópavogslaugar
- Stýrir nýtingu mannvirkisins með hliðsjón af þörfum almennings, skóla, íþróttafélaga og annarra notenda
- Ber ábyrgð á starfsmannamálum, þar á meðal ráðningum, þjálfun, starfsþróun og launamálum
- Hefur umsjón með skipulagi vakta og mönnun í samráði við vaktstjóra
- Ber ábyrgð á öryggismálum laugarinnar og tryggir að starfsemi sé í samræmi við lög reglur þar um
- Tryggir góða þjónustu og fagleg samskipti við gesti og aðra notendur laugarinnar.
- Annast samskipti við skóla vegna sundkennslu og tryggir að kennarar og leiðbeinendur uppfylli tilskildar hæfniskröfur
- Ber ábyrgð á aðgangs- og sölukerfum laugarinnar og að þau séu ætíð uppfærð og í samræmi við kröfur
- Hefur umsjón með tækjabúnaði, viðhaldi og endurbótum í samstarfi við deildarstjóra og eignadeild
- Tekur þátt í markaðs- og kynningarmálum sem tengjast starfsemi laugarinnar
- Sinnir skýrslugjöf og gagnaskilum vegna reksturs og starfsemi
- Fylgist með nýjungum á sviði reksturs, þjónustu, öryggis og umhirðu sundlauga
- Sinnir öðrum verkefnum samkvæmt ákvörðun yfirmanns
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði íþrótta-, tómstunda-, uppeldis- eða viðskipta-/rekstrarfræða
- Framhaldsmenntun á framangreindum sviðum er kostur
- Góð reynsla af stjórnunar- og/eða rekstrarstörfum er skilyrði
- Þekking og reynsla af mannauðsstjórnun
- Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni
- Frumkvæði, skipulagshæfni og geta til að vinna sjálfstætt
- Lausnamiðuð hugsun og hæfni til að leiða hóp
- Góð tölvukunnátta og færni í notkun upplýsingakerfa
- Gott vald á íslensku í ræðu og riti
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
Auglýsing birt21. október 2026
Umsóknarfrestur31. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Borgarholtsbraut 17, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin

Skólastjóri við Lágafellsskóla
Mosfellsbær

Sérfræðingur í opinberum innkaupum
FSRE

Teymisstjóri launamála hjá Hafnarfjarðarbæ
Hafnarfjarðarbær

Sérfræðingur í fjármálum - Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Verkefnastjóri í fjármálateymi - Nýr Landspítali – Hlutastarf
Nýr Landspítali ohf.

Deildarstjóri gæðadeildar
Landspítali

Verkefnastjóri viðskiptakerfa
Advania

Sérfræðingur í bókhaldi hjá ECIT á Blönduósi.
ECIT

Þjónustustjóri Sérverkefna
AÞ-Þrif ehf.

Viðskiptastjóri
AÞ-Þrif ehf.

Viltu stýra rekstri rafveitu Veitna?
Veitur