Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Forfallakennari - Víðistaðaskóli

Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða kennara í afleysingar

Víðistaðaskóli var stofnaður árið 1970, skólinn er heildstæður skóli með 1. – 10. bekk og eru nemendur um 520. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð - Virðing - Vinátta. Í Víðistaðaskóla fögnum við fjölbreytileikanum og er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína. Lögð er áhersla á líðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti og góðan námsárangur. Unnið er að þróun teymiskennslu og notkunar spjalda í skólastarfi. Í skólanum er metnaðarfullt starf sem byggir á skólaþróun og nemendalýðræði. Víðistaðaskóli er heilsueflandi grunnskóli og starfar í anda grænfánans þar sem lögð er áhersla á umhverfismennt og útikennslu. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal allra sem í skólanum starfa.

Helstu verkefni:

  • Annast kennslu á ýmsum stigum í afleysingu
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Haldgóð þekking á kennslufræði í íslensku
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnór Heiðarsson, skólastjóri, [email protected] eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645891, [email protected]

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst 2026.

Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt13. ágúst 2026
Umsóknarfrestur27. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar