Heilsuleikskólinn Urriðaból II
Heilsuleikskólinn Urriðaból II

Leikskólakennari / leiðbeinandi

Leikskólinn Urriðaból 2 við Holtsveg.

Leikskólinn opnaði vorið 2024 og er 6 deilda leikskóli með 126 börn. Urriðaból 2 er staðsettur í fjölbreyttu og fallegu umhverfi í Urriðaholti í Garðabæ.

Leikskólinn er rekinn af Skólum ehf sem starfa eftir Heilsustefnunni.

Einkunnarorð leikskólans eru : Heilbrigð sál í hraustum líkama.

Við tökum vel á mótgi nýju og áhugasömu starfsfólki og leggjum áherslu á jákvætt og uppbyggilegt starfsumhverfi sem er í mótun.

Við leitum að jákvæðu, stundvísu, ábyrgu og heiðarlegu starfsfólki til að ganga til liðs við metnaðarfullan og fjölbreyttan starfsmannahóp leikskólans.

Okkur vantar starfsfólk frá 1. sept 2026 til að starfsa næsta skólaár. Hér eru starfsaðstæður til fyrirmyndar bæði hvað varðar hljóðvist. loftgæði og vinnuaðstöðu.

Nánari upplýsingar um starfið veita Jónína Einarsdóttir, leikskólastjóri eða Elsa María Gunnarsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 570-4830 en einnig hægt að senda tölvupóst á [email protected].

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna að uppeldi og menntun barnanna. Fylgjast vel með velferð þeirra og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái að njóta sín sem einstaklingar. 
  • Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildastjóra.
  • Sinna þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barna sem yfirmaður felur honum. 
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn deildarstjóra og leikskólastjóra. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu
  • Framúrskarandi íslenskukunnátta. 
  • Reynsla af starfi í leikskóla.
  • Áhugi á að vinna með börnum. 
  • Færni í samskiptum og samstarfshæfileikar. 
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður. 
Fríðindi í starfi
  • Heilsuhvetjandi starfsumhverfi
  • Samgöngustyrkur
  • Viðverustefna
  • Heilsustyrkur
  • Vinnustytting
  • Metnaðarfullt starfsumhverfi
  • 3 heilsusamlegar máltíðir á dag
  • Starfsmannaafsláttur af leikskólagjöldum
Auglýsing birt13. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Holtsvegur 20, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar