Leikskólinn Engjaborg
Leikskólinn Engjaborg
Leikskólinn Engjaborg

Leikskólakennari Engjaborg

Leikskólakennari/leiðbeinandi í fullt starf óskast til starfa við leikskólann Engjaborg í Grafarvogi.

Leikskólinn Engjaborg tók til starfa árið 1994 í Grafarvogi. Leikskólinn er fyrir börn á aldrinum eins til sex ára. Þar dvelja að jafnaði um 70 börn á fjórum deildum.

Í Engjaborg er lögð áhersla á nám og velferð barna þar sem allir eru mikilvægir og hafa sömu réttindi. Námið fer fram í gegnum leikinn og lögð er áhersla á virkni og þátttöku allra. Í öllu starfi okkar leggjum áherslu á styrkleika barna og áhugasvið þeirra og að ólíkar aðferðir henti ólíkum aðilum.

Gildi Engjaborgar eru Vellíðan – Virðing - Sköpun

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara og gildum og áherslum leikskólans, einnig að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur

Leyfisbréf kennara æskilegt
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum kostur
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Frumkvæði, gleði og sköpun í starfi
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Áhugi á að vinna með börnum
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Fríðindi í starfi

Sundkort
Menningarkort
Heilsuræktarstyrkur
Samgöngusamningur ef notast er við almenningssamgöngur, gengið eða hjólað til vinnu.
36 stunda vinnuvika.
Afsláttur og forgangur að leikskólaplássi fyrir barn/börn í Reykjavíkurborg

Auglýsing birt12. ágúst 2026
Umsóknarfrestur23. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reyrengi 11, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar