Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Tómstundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðina Ásinn – Áslandsskóli

Félagsmiðstöðin Ásinn býr börnum og unglingum í 5. - 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði skólans eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Ásinn er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með unglingunum.

Starfið hentar vel fyrir skólafólk, eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu, vinnutíminn er utan hefðbundins vinnutíma. Tímabil ráðningar er frá 25.08.2026-10.06.2026

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá
  • Mikil samskipti og samvinna við börn og unglinga
  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
  • Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsþjálfun, námskeið og/eða nokkur starfsreynsla nægir til að öðlast þá þekkingu sem krafist er
  • Reynsla af starfi með börnum og unglingum
  • Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópsku tungumálaramma
  • Stundvísi og skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva
  • Almenn tölvukunnátta

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eva Björk Jónsdóttir, deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, í síma 664-5785 eða í gegnum netfangið [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst 2026.

Ferilskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt11. ágúst 2026
Umsóknarfrestur24. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Kríuás 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar