

Frístundaleiðbeinendur í Sólinni
Auglýst er eftir frístundaleiðbeinendum í starf með börnum og ungmennum sem hafa sérþarfir og þurfa stuðning í frítíma sínum.
Frístundaleiðbeinandi starfar í Sólinni, sem er staðsett í Fellabæ, en þar er rekið frístundastarf þar sem öll börn og ungmenni geta tekið þátt og notið sín á eigin forsendum og framlag hvers og eins er mikilvægt fyrir hópinn.
Um er að ræða hlutastörf eða tímavinnu á virkum dögum, og er upphaf starfs samkomulag. Ráðningatími einnig umsemjanlegur. Næsti yfirmaður frístundaráðgjafa er forstöðuaðili frístundar hjá Múlaþingi.
Viðkomandi vinnur í teymi ásamt öðru starfsfólki og tekur þátt í öllu frístundastarfi Sólarinnar. Starfsstöð frístundaleiðbeinanda er í Sólinni en viðkomandi gæti þurft að fara á milli bæjarkjarna Múlaþings eftir þörfum.
Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu fyrir börn og ungmenni á aldrinum 6-18 ára, þar sem uppeldisgildi frístundastarfs er höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og ungmennum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar.
- Styðja við börn og ungmenni í athöfnum daglegs lífs eins og við á.
- Að virkja börn og ungmenni til þátttöku og framkvæmda í starfinu, einkum þau sem þurfa sérstaka hvatningu og stuðnings vegna fötlunar eða félagslegra aðstæðna.
- Sér til þess að börnum og ungmennum líði vel og finni til öryggis á frístundaheimilinu.
- Leitast eftir að ná til þeirra barna og ungmenna sem ekki sinna heilbrigðum viðfangsefnum í frístundum sínum.
- Samskipti og samstarf við börn og ungmenni, foreldra og forsjáraðila, samstarfsfólk og aðra innan teymi barnsins.
- Vinnur samkvæmt skipulagi og leiðbeiningum frá yfirmanni að faglegu starfi með börnum og ungmennum í frístundum þeirra.
- Daglegur frágangur og þrif eftir þörfum.
- Reynsla af starfi með börnum og ungmennum mikill kostur.
- Góð íslenskukunnátta í máli og ritun.
- Umsækjandi þarf að vera 18 ára gamall og hafa hreint sakavottorð skv. 10. gr. Æskulýðslaga (lög nr. 70/2007).
- Snyrtimennska, góð samskiptahæfni og rík þjónustulund.
- Heiðarleiki og stundvísi, auk umburðalyndi.
- Er góð fyrirmynd.
- Bílpróf.
Íslenska










