

Barnagæsla og aðstoð við heimilisstörf
Fjölskylda í Reykjavík með þrjú ung börn leitar að áreiðanlegum og hlýjum aðila til að aðstoða við umönnun barnanna og dagleg verkefni á heimilinu í 50-100% starf. Starfshlutfall er umsemjanlegt fyrir réttan aðila.
Unnið er á virkum dögum og getur vinnutíminn að einhverju leiti verið sveigjanlegur á milli daga. Fjölskylduna vantar þó aðstoð við að koma börnum af stað út í daginn á morgnanna og við að taka á móti þeim seinni partinn, það væri því best ef aðilinn gæti verið á svæðinu milli 07:30-10:00 á morgnanna og svo aftur 15:30-18:30 seinni part dags.
Verkefnin væru til að mynda:
- Að aðstoða við að koma börnum af stað í skóla og leikskóla að morgni.
- Að taka á móti / sækja börn í skóla og leikskóla og gæta þeirra síðdegis
- Að keyra börn á æfingar, í tómstundir og mögulega önnur erindi
- Að undirbúa hollt og gott snarl fyrir börnin
- Að aðstoða börnin við heimanám og lærdóm
- Að fara í léttar verslunarferðir (aðallega matvara)
- Létt tiltekt og einföld heimilisverkefni (t.d. sinna þvotti, ganga frá eftir daginn, halda almennu skipulagi og heimili snyrtilegu)
Við erum að leita að manneskju:
- Sem hefur jákvætt viðmót og býr yfir þolinmæði
- Sem er ábyrg, stundvís og traust
- Er með bílpróf
Helst myndum við vilja finna einstakling sem hefur starfað sem kennari, leikskólakennari, leiðbeinandi í frístund, þroskaþjálfi, au pair eða annað sambærilegt starf með börnum.
Við bjóðum upp á:
- Fast starf og mjög góð laun í boði fyrir rétta manneskju
- 32 greidda orlofsdaga á ári
- Hlýlegt og gott vinnuumhverfi
- Gagnkvæmt traust
- Sveigjanleika
- Skemmtilega „vinnufélaga“ sem segja stundum brandara og finnst gaman að lita, púsla og leira
Umsóknarfrestur er til 25. ágúst
Umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með umsóknum hafa Unnur Ýr Konráðsdóttir ([email protected]) og Hilmar Garðar Hjaltason ([email protected]) hjá Vinnvinn.
Íslenska










