

Ertu sérfræðingur í hjúkrun?
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í hjúkrun á göngudeild innkirtla og gigtarsjúkdóma með áherslu á skjólstæðinga með fótasár af völdum sykursýki. Á deildinni eru starfræktar tvær sérgreinar, það eru gigt- og innkirtlalækningar. Auglýst staða sérfræðings í hjúkrun tilheyrir innkirtla hlutanum.
Sérfræðingur í hjúkrun starfar samkvæmt starfslýsingu en meginhlutverk, auk klínískra starfa, er ráðgjöf og kennsla til starfsfólks og nemenda auk rannsóknar- og þróunarvinnu. Enn fremur felur starfið í sér uppbyggingu, samræmingu og skipulagningu þjónustu við sjúklinga í samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir.
Á sjúkdóma starfar þverfaglegt teymi lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, næringafræðinga, fótaaðgerðafræðinga, atferlisfræðinga, geislafræðinga, ritara og annars aðstoðarfólks. Á göngudeildina koma sjúklingar í eftirlit, viðtal, mælingar, skoðun, rannsóknir og sárameðferð til fagfólks deildarinnar. Góður starfsandi er ríkjandi og ótalmörg tækifæri eru til vaxtar í starfi. Við vinnum markvisst að því að gera deildina okkar betri og fögnum nýjum hugmyndum.
Ráðið er í starfið 1. apríl 2026 eða skv. nánara samkomulagi.
Íslenska




























































