

Ert þú rafvirki / rafvirkjanemi?
Olíudreifing leitar að metnaðarfullum rafvirkja / rafvirkjanema til starfa í þjónustudeild fyrirtækisins í Reykjavík. Við sækjumst eftir starfsfólki sem hefur metnað til að læra og vinna í öflugu teymi sérfræðinga okkar.
Um starfið
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni við uppsetningu og viðhald á tækjabúnaði og ýmiskonar sérhæfð störf.
Starfsfólk Olíudreifingar þjónustar viðskiptavini okkar um allt land og því æskilegt að starfsmaður geti farið út á land til skamms tíma í senn.
Hæfniskröfur:
- Góð samskiptahæfni
- Vandvirkni og lausnamiðuð hugsun
- Reynsla af almennri raflagnavinnu er kostur
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
Við bjóðum þér:
- Spennandi verkefni og tækifæri til að læra
- Niðurgreiddan hádegismat
- Íþróttastyrk
- Gleraugnastyrk
- Virkt starfsmannafélag
Við hlökkum til að fá umsóknina þína
Umsóknarfrestur er til og með 14. desember. Nánari upplýsingar veitir Ólafur Már Símonarson ([email protected]).
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Um Olíudreifingu:
Olíudreifing er þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði orkumála. Hlutverk Olíudreifingar er að dreifa og halda utan um birgðir á fljótandi orkugjöfum. Félagið er nú þegar þátttakandi í orkuskiptum og er að undirbúa meðhöndlun rafeldsneytis.
Fyrirtækið rekur bifreiða-, járnsmíða-, dælu- og rafmagnsverkstæði. Einnig er rekið þjónustuverkstæði sem sinnir viðhaldi á raf- og vélbúnaði. Starfsfólk félagsins er um 130 talsins og starfar á starfsstöðvum víðsvegar um landið. Unnið er samkvæmt gæðavottuðum vinnuferlum.
Nánari upplýsingar um Olíudreifingu ehf. má finna á www.odr.is.
Enska
Íslenska










