
Eskimos Iceland
Eskimos tekur á móti og skipuleggur ferðir og upplifanir fyrir nokkur þúsundir erlendra gesta á ári. Við leggjum mikla áherslu á klæðskerasniðnar lausnir og frábæra þjónustu.
BÓKHALD - Ferðaskrifstofa
Eskimos Iceland leitar að öflugum einstaklingi í bókhald
Við leitum að öflugum og áreiðanlegum einstaklingi til starfa í bókhaldi. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem skipulag, nákvæmni og góð yfirsýn skipta máli.
Um fyrirtækið:
Eskimos er ferðaskrifstofa staðsett í Reykjavík sem samanstendur af metnaðarfullu og fjölbreyttu teymi. Við vinnum saman að því að skapa ógleymanlegar ferðir fyrir gesti okkar, með áherslu á sveigjanleika, fagmennsku og góð samskipti. Virkilega skemmtilegur vinnustaður með góðum starfsanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegt bókhald og skráning reikninga
- Afstemmingar og uppgjör
- Virðisaukaskattsskil og aðstoð við ársuppgjör
- Samskipti við birgja og samstarfsfólk
- Ýmis tilfallandi verkefni tengd bókhaldi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla á sviði bókhalds og/eða fjármála
- Samviskusöm, skipulögð og nákvæm vinnubrögð
- Góð færni í Excel og almenn tölvukunnátta
- Þekking á DK bókhaldskerfi er kostur
- Góð kunnátta í íslensku og ensku
Auglýsing birt13. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skútuvogur 1b, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfstemmingDKFrumkvæðiGjaldkeriMicrosoft ExcelReikningagerðSamviskusemi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður á bókhaldssvið
Enor ehf

Launafulltrúi
Securitas

Öflugur fulltrúi í innkaupadeild
Garðheimar

Gjaldkeri |Skrifstofuumsjón
Íslensk fjárfesting

Vörustjóri heilbrigðisvöru
Heilsa

Sumarstarf á skrifstofu á Húsavík
Eimskip

Fjölbreytt skrifstofustarf
LOGOS lögmannsþjónusta

Sérfræðingur í deild leyfisveitinga og ökunáms
Samgöngustofa

Verkefnastjóri á mannauðssviði
Hrafnista

Þjónustufulltrúi í fraktdeild
DHL Express Iceland ehf

Þjónustufulltrúi í Vatnsskarðsnámu
Steypustöðin - námur ehf.

Sölusérfræðingur - Advise ehf.
Advise Business Monitor