Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar

Ábyrgðaraðili teikninga og tæknigagna

Orka náttúrunnar leitar að ábyrgðaraðila teikninga og tæknigagna

Vilt þú bera ábyrgð á teikningum og tæknigögnum stærstu jarðvarmavirkjana landsins?

Í starfi ábyrgðaraðila teikninga og tæknigagna kemur þú til með að gegna lykilhlutverki við mótun verkferla sem hafa bein áhrif á rekstraröryggi og framtíðarþróun virkjana Orku náttúrunnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Réttar upplýsingar eru grundvöllur öruggrar ákvarðanatöku í rekstri, viðhaldi og uppbyggingu í virkjanarekstri Orku náttúrunnar.

Ábyrgðaraðili teikninga og tæknigagna tryggir að teikningar og tæknigögn virkjana ON séu rétt, uppfærð og aðgengileg.

Starfið er fjölbreytt og snýr bæði að daglegri umsjón og framtíðarþróun alls frá kerfis-, bygginga-, véla- og rafmagnsteikninga til gagnablaða og lykilupplýsinga um búnað.

Í hlutverkinu felst ábyrgð á teikningagagnagrunni Orku náttúrunnar og tæknigögnum búnaðar, teikninga- og hönnunarvinna við breytingar á búnaði og kerfum auk þátttöku í mótun verkferla og umbóta með áherslu á gæði og rekjanleika gagna.

Starfið tilheyrir Tækniþróun, deild þar sem unnið er að þróunar- og fjárfestingarverkefnum, forhönnun og umbótum sem móta framtíð virkjana ON.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af vinnu með teikningar í iðnaðarumhverfi
  • Góður skilningur á gagnaskipulagi, vinnu í gagnagrunnum, skráningu, útgáfustýringu og rekjanleika tæknilegra gagna
  • Góð tölvufærni og reynsla af teiknihugbúnaði og/eða tæknilegum upplýsingakerfum
  • Góð samskiptafærni og lausnamiðuð hugsun
  • Frumkvæði, nákvæmni og geta til að forgangsraða verkefnum
  • Menntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði tækniteikni, vélfræði, tæknifræði eða skyldra greina

Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið með vísan í hæfniskröfur.

Auglýsing birt12. ágúst 2026
Umsóknarfrestur30. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hellisheiðarvirkjun
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Nesjavallavirkjun 170925, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.Hönnun gagnagrunnaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Nákvæmni
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar