
Landsvirkjun
Við hjá Landsvirkjun vinnum rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum og rekum sautján aflsstöðvar á starfssvæðum víðs vegar um land. Höfuðstöðvar okkar eru í Reykjavík.
Við leggjum áherslu á að byggja upp metnaðarfullt starfsumhverfi sem nærir öfluga liðsheild, árangur og hvetjandi starfsanda.
Við tryggjum starfsfólki góðan aðbúnað og sveigjanleika til að einfalda og auðvelda heilbrigða samþættingu vinnu og einkalífs. Stöðugt er hlúð að vellíðan og farsæld starfsfólks og unnið með heilsutengdar forvarnir, öryggi og vinnuvernd.
Við fögnum fjölbreytileikanum og leggjum áherslu á jafnrétti í öllum okkar störfum.

Skipuleggjandi viðhaldsverkefna á Þjórsársvæði
Skipuleggjandi viðhaldsverkefna ber ábyrgð á að skipuleggja, forgangsraða og tímasetja viðhaldsverkefni í samræmi við rekstrarþarfir og samþykkta viðhaldsáætlun. Starfið tilheyrir sviði vatnsafls og felur í sér að samræma nýtingu mannafla og annarra auðlinda með það að markmiði að tryggja skilvirka og örugga framkvæmd viðhaldsverkefna á starfssvæðinu. Jafnframt tekur skipuleggjandi virkan þátt í stöðugum umbótum með greiningu á nýtingu mannafla, framkvæmd viðhaldsverkefna og tækifærum til að auka skilvirkni og árangur viðhaldsverkefna.
Starfsstöð er í Búrfelli, Þjórsársvæði.
Helstu verkefni:
- Tímasetja viðhaldsverkefni í samræmi við samþykktar viðhaldsáætlanir.
- Tryggja að viðhaldsverk fari fram samkvæmt verklagsreglum, öryggiskröfum og gildandi leyfum.
- Tryggja jafnvægi milli tiltæks mannafla og fyrirhugaðs vinnuálags.
- Uppfæra áætlanir og bregðast við breytingum í rekstri, frávikum og óvæntum bilunum.
- Skrá og viðhalda áreiðanlegum upplýsingum um tímasetningar, mannafla og framkvæmd í viðhaldskerfi (DMM).
Hæfni:
- Tæknimenntun sem nýtist í starfi.
- Framúrskarandi skipulagshæfni og góð yfirsýn yfir verkefni.
- Jákvæðni og góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði, lausnamiðað hugarfar og geta til að vinna undir álagi.
- Þekking og reynslu af DMM eða sambærilegum viðhaldskerfum.
Umsókninni skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir reynslu, hæfni og hvað kveikir áhuga á starfinu.
Auglýsing birt7. ágúst 2026
Umsóknarfrestur16. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Búrfellsvirkjun 166701, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSkipulagVerkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Rafvirki
Blikkás ehf

Fagstjóri eignaumsýslu
Grundarheimilin

Tæknisérfræðingur á rekstrarsviði
Skeljungur ehf

Verkefnastjóri
Landskerfi bókasafna hf.

Reyndur Iðnaðarmaður óskast
RST Net ehf.

Sérfræðingur lagna- og loftræstikerfa
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Sérfræðingur flugvallarinnviða
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Global Product Manager
Embla Medical | Össur

Tech Lead – Payments
Icelandair

Sérfræðingur í rekstrarumbótum og fjármálum
Veritas

Ert þú týpan sem elskar að leysa tæknileg vandamál?
Raförninn

Tæknimaður með sölu- og þjónustuáhuga.
Ferro Zink hf