

Tæknisérfræðingur á rekstrarsviði
Vilt þú vinna fjölbreytt starf þar sem tækni, rekstur og lausnamiðuð hugsun fara saman? Skeljungur leitar að metnaðarfullum og ábyrgum einstaklingi til að ganga til liðs við rekstrarsvið fyrirtækisins.
Í starfinu færð þú tækifæri til að vinna með fjölbreyttan tækni- og tölvubúnað og taka þátt í að tryggja öruggan og skilvirkan rekstur Skeljungs um land allt.
Um Skeljung
Skeljungur er leiðandi þjónustufyrirtæki á sviði orku og rekstrarlausna. Félagið sér um innflutning, dreifingu og sölu á eldsneyti, smurolíum, efnavörum og fjölbreyttum rekstrarvörum fyrir fyrirtæki, sjávarútveg, landbúnað og flugstarfsemi.
Hjá Skeljungi starfar öflugur hópur fólks með fjölbreytta þekkingu og reynslu. Við leggjum áherslu á jákvætt starfsumhverfi, öfluga öryggismenningu og tækifæri starfsfólks til að þróast í starfi.
- Umsjón með hugbúnaði og tölvukerfum sem styðja við rekstur
- Umsjón eð tönkum, dælubúnaði og öðrum tæknilegum búnaði
- Eftirfylgni með viðhaldi, lögbundnu eftirliti, leyfum og löggildingum búnaðar
- Umsjón með lager varahluta og tæknibúnaði
- Pantanir og innkaup á búnaði og varahlutum
- Samskipti og samstarf við þjónustuaðila, verktaka og samstarfsfólk
- Þátttaka í umbótum og þróun verkferla sem stuðla að öruggum og skilvirkum rekstri
- Tæknimenntun, svo sem vélfræði, rafiðn, iðnfræði eða sambærilegri grein er kostur
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný tæknikerfi
- Reynsla af tæknimálum, viðhaldi eða rekstri tæknibúnaðar er kostur
- Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð
- Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og rík öryggisvitund
- Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna í teymi
- Góð íslensk- og enskukunnátta
Íslenska










