
Landsvirkjun
Við hjá Landsvirkjun vinnum rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum og rekum sautján aflsstöðvar á starfssvæðum víðs vegar um land. Höfuðstöðvar okkar eru í Reykjavík.
Við leggjum áherslu á að byggja upp metnaðarfullt starfsumhverfi sem nærir öfluga liðsheild, árangur og hvetjandi starfsanda.
Við tryggjum starfsfólki góðan aðbúnað og sveigjanleika til að einfalda og auðvelda heilbrigða samþættingu vinnu og einkalífs. Stöðugt er hlúð að vellíðan og farsæld starfsfólks og unnið með heilsutengdar forvarnir, öryggi og vinnuvernd.
Við fögnum fjölbreytileikanum og leggjum áherslu á jafnrétti í öllum okkar störfum.

Rekstur rafveitna á Þjórsársvæði
Starfið tilheyrir sviði vatnsafls og gegnir mikilvægu hlutverki við að tryggja öruggan og áreiðanlegan rekstur raforkukerfa. Í starfinu felst umsjón með svæðisveitu, rofastjórnun og tæknilegri skjölun. Jafnframt verður viðkomandi fulltrúi ábyrgðarmanns Rafmagnsöryggisstjórnunarkerfis (RÖSK) á svæðinu og tekur þátt í að viðhalda og efla öryggismenningu Landsvirkjunar. Við leitum að einstaklingi sem býr yfir góðri fagþekkingu, sýnir frumkvæði og leggur áherslu á öryggi, gæði og gott samstarf.
Starfsstöð er í Búrfelli, Þjórsársvæði.
Helstu verkefni:
- Umsjón með rofastjórnun á starfssvæðinu, þar á meðal í vindlundi við Vaðöldu.
- Umsjón með rekstri og viðhaldi rafveitu á svæðinu.
- Umsjón með teikningum, tæknigögnum og annarri tæknilegri skjölun sem tengist rafveitunni.
- Viðhald, endurskoðun og gerð leiðbeininga og gátlista.
Hæfni:
- Menntun á sviði rafmagns sem nýtist í starfi.
- Reynsla af rekstri og viðhaldi háspennukerfa.
- Góð þekking á stjórn- og varnarbúnaði raforkukerfa.
- Reynsla af bilanagreiningu á rafbúnaði.
- Jákvæðni og góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Sjálfstæði í starfi og skipulögð vinnubrögð.
Umsókninni skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir reynslu, hæfni og hvað kveikir áhuga á starfinu.
Auglýsing birt7. ágúst 2026
Umsóknarfrestur16. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Búrfellsvirkjun 166701, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiNákvæmniSkipulagVandvirkni
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í áhaldahús
Reykhólahreppur

Sérfræðingur í rekstri stjórn- og varnarbúnaðar
Landsnet hf.

Tæknimaður
STOÐ

Innviðir framtíðarinnar - Sérfræðingar í gagnaverum á Blönduósi og í Keflavík
Ofar ehf

Rafvirkjar og vélvirkjar
Norðurál

Rafvirkjar óskast
Gaflarar ehf.

Rafvirki
Rafgeisli ehf.

Multivac Tæknimaður
Multivac ehf

Tæknistarf á Reykjanesi
Securitas

Við leitum að öflugum rafvirkjum!
Rafmiðlun

Rafvirkjanemi
AJraf ehf

Rafvirki - Eignabyggð
Eignabyggð ehf.