

Sérfræðingur í rannsóknum og gerð tækniblaða
VILT ÞÚ STARFA Á NÚTÍMALEGUM VINNUSTAÐ SEM LEGGUR ÁHERSLU Á ÖFLUGA MIÐLUN UPPLÝSINGA, ÁRANGURSRÍKT SAMSTARF VIÐ HAGAÐILA OG NÝSKÖPUN Á BYGGINGARMARKAÐI?
HMS vinnur að kerfisbreytingu í mannvirkjagerð með tillögum að breyttu byggingareftirliti í nýrri byggingarreglugerð. Endurskoðun byggingarreglugerðar er liður í heildstæðu átaki stjórnvalda til að einfalda regluverk á sviði mannvirkjagerðar.
Við leitum því að metnaðarfullum sérfræðingi í teymi starfsumhverfis mannvirkjagerðar. Teymið vinnur m.a. að því að efla og samhæfa rannsóknir og prófanir í húsnæðis- og mannvirkjagerð á Íslandi í gegnum samstarfsvettvanginn Burð auk þess að sinna öflugri leiðbeiningagerð. Það veitir hagaðilum stuðning til að ná árangri við að uppfylla grunnkröfur um mannvirki. Einnig tekur teymið þátt í endurskoðun byggingarreglugerðar og vinnur að því að draga úr kolefnislosun á íslenskum byggingamarkaði.
Fjölbreytt og krefjandi verkefni eru framundan við þróun á starfsumhverfi mannvirkjagerðar í takt við hlutverk og framtíðarsýn stofnunarinnar.
- Þátttaka við gerð og þróun tækniblaða svo sem Rb blaða og annarra hagnýtra leiðbeininga, m.a. í samstarfi við fagaðila utan HMS
- Þátttaka í verkefnum samstarfsvettvangsins Burðar, m.a. Aski mannvirkjarannsóknasjóði og samvinnu við fagfélög
- Þátttaka í að byggja upp þekkingu á prófunum byggingarvara á Íslandi
- Styðja við aukna endurnotkun byggingarvara og aðra hringrás í mannvirkjagerð
- Gerð og miðlun fræðsluefnis um mannvirkjagerð
- Svara tæknilegum fyrirspurnum
- Háskólamenntun á byggingasviði, s.s. verkfræði, tæknifræði, byggingafræði, eða arkitektúr er skilyrði
- Reynsla af byggingaframkvæmdum og hönnun er kostur
- Reynsla af rannsóknum og / eða prófunum er kostur
- Þekking á faggildingum er kostur
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvætt og lausnamiðað viðhorf
- Gott vald á íslensku og ensku
Enska
Íslenska










