

Tómstundaleiðbeinandi - Aldan - Öldutúnsskóli
Öldutúnsskóli auglýsir eftir tómstundaleiðbeinanda í félagsmiðstöðina Ölduna
Við í Öldutúnsskóla auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum tómstundaleiðbeinanda til starfa. Í Öldutúnsskóla eru um 620 nemendur í 1. - 10. bekk.
Félagsmiðstöðin Aldan býr börnum og unglingum í 5. – 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði skólans eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Aldan er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með unglingunum.
Starfið hentar vel fyrir skólafólk eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá í samvinnu við stjórnendur, samstarfsfólk og nemendur
- Mikil samskipti og samvinna við börn og unglinga
- Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
- Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu tómstundaleiðbeinanda
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Starfsþjálfun, námskeið og/eða nokkur starfsreynsla nægir til að öðlast þá þekkingu sem krafist er
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Stundvísi og skipulagshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva
- Almenn tölvukunnátta
- Íslenskukunnátta
Hreint sakavottorð er skilyrði.
Nánari upplýsingar um starfið veita Margrét Sverrisdóttir, skólastjóri, í síma 664-5894 eða í gegnum netfangið [email protected] og/eða Kristján Hans Óskarsson, deildarstjóri, í síma 664-5712 eða í gegnum netfangið [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 22. ágúst 2025
Ferilskrá fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.










































