

Deildarstjóri - Leikskólinn Smáralundur
Leikskólinn Smáralundur er staðsettur við Smárabarð 1, hann er fjögurra deilda og hefur verið heilsueflandi leikskóli frá árinu 2016.
Einkunnarorð skólans eru: Hreyfing, hollusta og vellíðan. Leikskólinn leggur mikla áherslu á daglega hreyfingu og markvisst hreyfiuppeldi. Með því er lagður grunnur að líkamlegri, andlegri og félagslegri velferð til lífstíðar.
Okkar markmið eru að efla hreyfifærni og skapa öruggt umhverfi sem hvetur til hreyfingar. Þá stuðlar leikskólinn að heilsusamlegu fæðuvali með fræðslu og góðu framboði á fjölbreyttum mat. Vellíðan birtist í því að ýta undir jákvæða sjálfsvitund og trú á eigin getu.
Leikskólinn er SMT- skóli.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinnur að og ber ábyrgð á uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
- Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati á faglegu starfi deildarinnar
- Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á miðlun upplýsinga
- Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og að öll börn fái kennslu og umönnun við hæfi
- Ber ábyrgð á allri foreldrasamvinnu
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af starfi deildarstjóra í leikskóla er æskileg
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Góð færni í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Einlægur áhugi fyrir velgengni allra barna
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 22. ágúst n.k.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Inga Fríða Tryggvadóttir leikskólastjóri, [email protected] eða í síma 565-4493
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Fríðindi í starfi:
- Heilsuræktarstyrkur
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Forgangur á leikskóla
- Bókasafnskort
- Sundkort
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.










































