Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Leikskóla- og frístundaliði - Heilsuleikskólinn Hamravellir

Heilsuleikskólinn Hamravellir óskar eftir að ráða metnaðarfullan starfsmann í fullt starf.

Í Heilsuleikskólanum Hamravöllum er hópur faglegra og skemmtilegra starfsmanna sem óskar eftir liðsauka.

Hamravellir er staðsettur innarlega á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Hamravellir er heilsuleikskóli þar sem áhersla er lögð á hollt mataræði, útiveru, hreyfingu og sköpun. Einkunnarorð leikskólans eru hreyfing, sköpun og vellíðan.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur að uppeldi og menntun barna á leikskóla undir leiðsögn og stjórn deildarstjóra og stjórnenda leikskóla.
  • Tekur þátt í leikskóla- og frístundastarfi innan leikskólans og öðrum þeim störfum sem fram fara innan skóladagsins.
  • Fylgist vel með velferð barna og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Tekur þátt í og kemur að hugmyndavinnu og skipulagi á tómstunda- og frístundastarfi innan leikskólans.
  • Aðstoðar börn á matmálstímum og sinnir undirbúningi og frágangi.
  • Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er eiga við og aðalnámskrá leikskóla.
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af uppeldis- eða kennslustörfum æskileg
  • Reynsla af sambærilegum störfum í leikskóla kostur
  • Góð samstarfs- og samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Bókasafnskort
  • Sundkort
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur í leikskóla
  • Stuðningur til menntunar

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Arnar Bjargardóttir, leikskólastjóri, [email protected] eða í síma 424-4640.

Fáist faglærður kennari til starfa, nýtur hann forgangs í starfið á grundvelli laga nr. 95/2019. Við hvetjum kennara til að sækja um. Leyfisbréf kennara fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf, eða KÍ ef kennaramenntaður einstaklingur sækir um starfið.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published6. August 2025
Application deadline20. August 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hvannavellir 1, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (26)
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði í frístundaheimilið Tröllaheima - Áslandsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar - Skarðshlíðarleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar – Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Vesturkot
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi - Leikskólinn Vesturkot
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri í búsetukjarna á Drekavöllum
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari í yngri deild - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stig - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Forstöðumaður á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tómstundaleiðbeinandi - Setrið, Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri – Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tómstundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðina Skarðið – Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á miðstig – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari í sérdeild - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tækjamaður í garðyrkju - Þjónustumiðstöð
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tækjamaður - Þjónustumiðstöð
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skipstjóri/hafnarvörður - Hafnarfjarðarhöfn
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Hlíðarberg
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tómstundaleiðbeinendur í Mosann – Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á miðstigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður óskast til starfa í Miðstöðina - úrræði fyrir fatlað fólk
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stig - Áslandsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliðar í Krakkaberg - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður í Nýsköpunarsetur
Hafnarfjarðarbær