Aðstoðardeildarstjóri í bráða- og ráðgjafarþjónustu geðþjónustu
Laust er til umsóknar spennandi starf aðstoðardeildarstjóra í bráða- og ráðgjafarþjónustu geðþjónustu Landspítala við Hringbraut. Við leitum eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi með einlægan áhuga á að sinna fólki með geðrænan vanda.
Starfsemi bráða- og ráðgjafarþjónustu einkennist af öflugri þverfaglegri teymisvinnu og starfið felur í sér mikil samskipti, sjálfsstæði og fjölbreytni. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og á deildinni eru ótalmörg tækifæri til að vaxa í starfi og dýpka þekkingu sína og færni sem stjórnandi og hjúkrunarfræðingur. Markviss stuðningur er í upphafi starfs.
Starfsemi bráðamóttöku geðdeildar er fjórþætt:
-
Bráðamóttaka sjúklinga sem eiga við bráð geðræn veikindi að stríða
-
Skammtíma eftirfylgd eftir komu í bráðaþjónustu
-
Ráðgjafaþjónusta fyrir bráðamóttöku í Fossvogi
-
Ráðgjafaþjónusta fyrir vefrænar deildir Landspítala
Starfshlutfall er 100% og er að mestu um dagvinnu að ræða en einnig möguleiki á helgarvakt u.þ.b. sjöttu hverja helgi. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Education and requirements
Íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur
Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur
Faglegur metnaður og áhugi á þjónustu við fólk með bráðan geðrænan vanda
Reynsla af forystu og/ eða stjórnun er kostur
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Færni og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
Umbótamiðuð hugsun og ábyrgð í starfi
Frumkvæði og mjög góð samskiptahæfni
Stundvísi og áreiðanleiki
Færni til að hafa góða yfirsýn
Geta til að vinna undir álagi
Íslensku- og enskukunnátta
Responsibilities
Vinnur í samráði við hjúkrunardeildarstjóra að skipulagningu á starfsemi deildar
Ber ábyrgð á verkefnum sem hjúkrunardeildarstjóri felur honum samkvæmt sérstakri verkefnalýsingu
Er leiðandi í klínísku starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu og framþróun í hjúkrun
Virk þátttaka í þverfaglegri þjónustu fyrir þjónustuþega og í þjónustu fyrir aðstandendur
Ber ábyrgð á starfsemi, mönnun og rekstri deildar í samráði við hjúkrunardeildarstjóra
Er ábyrgur fyrir skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar í samráði við hjúkrunardeildarstjóra
Vinnur náið með hjúkrunardeildarstjóra að mótun liðsheildar