

Hjúkrunarfræðingur á útskriftardeild aldraðra
Langar þig í hvetjandi og lærdómsríkt starf þar sem ríkir góður starfsandi og áhersla er á samvinnu, virðingu og jákvætt starfsumhverfi?
Við leitum eftir öflugum hjúkrunarfræðingi í vaktavinnu sem hefur ánægju af samstarfi við aldraða. Góður starfsandi er ríkjandi á deildinni sem einkennist af teymisvinnu og lögð er áhersla á góð samskipti við sjúklinga, fjölskyldur þeirra og samstarfsfólk.
Útskriftardeild aldraðra (L2) Landakoti er með 16-18 sólahringsrými fyrir aldraða einstaklinga sem þurfa 2-4 vikna endurhæfingu eftir bráðveikindi. Markmið endurhæfingar er að einstaklingar nái bættri hreyfigetu og geti sjálfstætt leyst af hendi sem flestar athafnir daglegs lífs.
Tekið er vel á móti nýju starfsfólki og góð aðlögun er í boði. Landakot er staðsett í rólegu og rótgrónu hverfi miðsvæðis í Reykjavík og er andinn í húsinu einstakur. Næsti yfirmaður er Heiða Björk Gunnlaugsdóttir, deildarstjóri á útskriftardeild aldraðra og er áhugasömum velkomið að hafa samband.
Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.















































