

Starf í vöruhúsi Landspítala
Landspítali auglýsir laust til umsóknar starf í vöruhúsi Landspítala. Leitað er eftir jákvæðum og ábyrgum einstaklingi sem býr yfir lipurð í mannlegum samskiptum, stundvísi og heiðarleika. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Vöruhús Landspítala hýsir heilbrigðis- og rekstrarvörur fyrir spítalann og aðrar heilbrigðisstofnanir. Framundan eru spennandi tímar þar sem vöruhúsið mun flytja í stærra húsnæði á næstu mánuðum með tilheyrandi tækninýjungum og breytingum. Hlutverk starfsfólks í vöruhúsi er móttaka á vörum og afgreiðsla pantana til viðskiptavina ásamt þrifum og öðrum tilfallandi verkefnum sem tilheyra í vöruhúsi. Viðkomandi mun heyra undir teymisstjóra vöruhúss sem er ábyrgur fyrir því að starfsemi vöruhúss gangi skilvirkt fyrir sig eftir settum markmiðum.
Vöruhús Landspítala er hluti af Aðfangaþjónustu sem skiptist í fimm teymi; vöruhús, þvottahús, flutningaþjónustu á Hringbraut, flutningaþjónustu í Fossvogi og deildaþjónustu. Bæði núverandi og nýtt vöruhús er staðsett á Tunguhálsi og þar vinna um 20 einstaklingar. Unnið er í vöruhúsi alla virka daga frá 07:00-18:00 á 7 tíma vöktum.































































