Deloitte
Hjá okkur starfa löggiltir endurskoðendur, viðskiptafræðingar, lögfræðingar, fjármálafræðingar, verkfræðingar, tölvunarfræðingar, kerfisfræðingar, fjármálaverkfræðingar, alþjóðafræðingar, markaðsfræðingar, margmiðlunarhönnuðir, félagsfræðingur, stjórnmálafræðingur, húsasmiður, viðurkenndir bókarar og svo mætti lengi telja.
85% starfsmanna er með grunnmenntun úr háskóla, 43% með meistaragráðu.
Verkefnastjóri í upplýsingatækniráðgjöf
Við erum að ráða!
Upplýsingatækniráðgjöf Deloitte leitar að lausnamiðuðum verkefnastjóra til að stýra spennandi og mjög fjölbreyttum tæknilegum innleiðingar- og umbótarverkefnum með okkur. Við vinnum með mörgum af flottustu fyrirtækjum landsins allan ársins hring á vegferð þeirra í stafrænni umbreytingu. Sem verkefnastjóri muntu stýra innleiðingum og verkefnum og sjá til þess að þau komist farsællega til skila.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þú vinnur sem hluti af teymi metnaðarfullra einstaklinga og fæst m.a. við:
- Umsjón, stjórnun og skipulag verkefna
- Þarfagreiningar
- Uppsetningu verkáætlana
- Almenna ráðgjöf og þjónustu
- Þú fylgist með þróun og nýjungum á þínu sviði
- Þú nýtir þér námskeið og ráðstefnur á vegum Deloitte og samstarfsaðila til að auka færni þína og þekkingu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi t.d. tölvunarfræði, verkfræði, viðskiptafræði eða verkefnastjórnun
- Þekking á fjárhagskerfum kostur (Navision, Business Central, DK, Microsoft Finance, SAP)
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar og færni til að eiga leiða saman ólíka hópa fólks
- Frumkvæði, drifkraftur og fagleg vinnubrögð
- Þekking á Agile og Scrum hugmyndafræði
- Áhugi á tækniþróun í upplýsingatækniráðgjöf
Auglýsing stofnuð26. apríl 2024
Umsóknarfrestur10. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaFramúrskarandi
EnskaMjög góð
Staðsetning
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
AgileFrumkvæðiMetnaðurSCRUMVerkefnastjórnunVerkefnastjórnun í upplýsingatækni
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)
Framleiðslusérfræðingur í tækniteymi kerskála
Alcoa Fjarðaál
Svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins
SSH
Verkefnastjóri í áhættustýringu
Íslandsbanki
Mobile Developer
LS Retail
Sérfræðingur - þjónustudeild á Suðursvæði.
Vegagerðin
Greinandi á sviði sjálfbærnimála
Reitun ehf
Verkefnastjóri viðhalds og nýbygginga
K16 ehf
System Administrator
Tern Systems
Sérfræðingur í fjármálum, greiningum og áætlanagerð
Fjármála og efnahagsráðuneytið
Verkefnastjóri yngri fl. handknattleiksdeildar Stjörnunnar
Ungmennafélagið Stjarnan
Security and Compliance Specialist
LS Retail
Verkefnastjóri í stafrænni umbreytingu
Samband íslenskra sveitarfélaga