Deloitte
Hjá okkur starfa löggiltir endurskoðendur, viðskiptafræðingar, lögfræðingar, fjármálafræðingar, verkfræðingar, tölvunarfræðingar, kerfisfræðingar, fjármálaverkfræðingar, alþjóðafræðingar, markaðsfræðingar, margmiðlunarhönnuðir, félagsfræðingur, stjórnmálafræðingur, húsasmiður, viðurkenndir bókarar og svo mætti lengi telja.
85% starfsmanna er með grunnmenntun úr háskóla, 43% með meistaragráðu.
Ert þú endurskoðandi framtíðarinnar?
Við leitum að öflugum einstaklingi sem er að stefna á, hefur nýlokið eða er jafnvel að vinna að M.Acc gráðu og langar að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í alþjóðlegu starfsumhverfi. Við leitum að einstakling sem hugsar í lausnum, getur unnið sjálfstætt, er drífandi og vill hafa áhrif. Sem endurskoðandi framtíðarinnar munt þú starfa í samheldnu teymi undir handleiðslu löggiltra endurskoðenda og öðlast þannig dýrmæta reynslu á sviði endurskoðunar og reikningsskila.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þú vinnur sem hluti af teymi metnaðarfullra einstaklinga
- Þú vinnur að fjölbreyttum verkefnum í endurskoðun og reikningsskilum
- Alla jafna vinnur þú í höfuðstöðvum Deloitte en vinnustaður dagsins fer þó eftir tegund verkefna og þeim viðskiptavin sem unnið er fyrir hverju sinni
- Þú fylgist með þróun og tækninýjungum á þínu sviði
- Þú nýtir þér námskeið og ráðstefnur á vegum Deloitte og samstarfsaðila til að auka færni þína og þekkingu
- Þú vinnur undir handleiðslu reyndra endurskoðenda
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þú brennur fyrir það að þróa færni þína í endurskoðun og reikningsskilum
- Þú hefur metnað og nýtur þess að læra
- Þú býrð yfir löngun til að skapa frábæra upplifun fyrir viðskiptavini
- Þú hefur gaman af því að takast á við ný og krefjandi verkefni
- Þú býrð yfir góðri íslensku- og enskukunnáttu í ræðu og riti
- Þú býrð yfir greiningarhæfni og góðri þekkingu á Excel
- Reynsla af bókhaldsvinnu eða öðru sem nýtist í starfi er kostur
- Þú ert að ljúka eða hefur lokið B.Sc. menntun sem tengist viðskiptafræði, hagfræði eða fjármálum með góðum árangri
- Stefnir á, ert að vinna að eða hefur jafnvel lokið M.Acc gráðu
Auglýsing stofnuð12. apríl 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálakunnátta
ÍslenskaFramúrskarandi
EnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
Fljót/ur að læraHreint sakavottorðMetnaðurSjálfstæð vinnubrögð
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
Þjónustufulltrúi
Afkoma vátryggingarmiðlun ehf.
Hlutabréfagreinandi
Reitun ehf
Vilt þú kynnast störfum endurskoðanda?
PwC
Sérfræðingar í deild efnahagsmála
Hagstofa Íslands
Leiðtogi yfir starfsemi Samskipa á Austurlandi
Samskip
Data Analyst
CCP Games
Verkefnastjóri í áhættustýringu
Íslandsbanki
Gjaldkeri/Bókari hjá The Reykjavík Edition
The Reykjavik EDITION
Forstöðumaður reikningshalds
Travelshift
Bókari
DHL Express Iceland ehf
Löggiltur endurskoðandi
Grant Thornton
Sérfræðingur í uppgjörum og skattskilum
Grant Thornton