Verkefnastjóri yngri fl. handknattleiksdeildar Stjörnunnar
Við leitum að verkefnastjóra yngri flokka handknattleiksdeildar Stjörnunnar
Verkefnastjóri hefur umsjón með barna – og unglingastarfi handknattleiksdeildar í samráði við rekstrarstjóra deildarinnar, barna – og unglingaráð og framkvæmdastjóra Stjörnunnar. Í yngri flokkum deildarinnar eru um 400 iðkendur og 34 metnaðarfullir þjálfarar.
Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á því að vinna með Stjörnunni og aðstoða við uppbyggingu í yngri flokkum deildarinnar. Um er að ræða 50% starf. Möguleiki er á því að taka að sér þjálfun hjá félaginu samhliða starfinu.
· Fagleg forysta um þjónustu við iðkendur í samstarfi við rekstrarstjóra.
· Stuðningur við þjálfara deildarinnar í að framfylgja stefnu deildarinnar.
· Yfirumsjón með skipulagi starfsins og daglegur rekstur.
· Skipulagning og gerð æfingatöflu.
· Skipulagning móta og leikja í samstarfi við rekstrarstjóra og barna – og unglingaráð.
· Brennandi áhugi á uppbyggingu yngri flokka handknattleiksdeildar og innleiðingu stefnu hennar.
· Jákvætt lífsviðhorf og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar.
· Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun.
· Framtíðarsýn og ósérhlífni.
· Reynsla af þjálfun er kostur.
· Aðgangur að líkamsræktaraðstöðu