

Viðskiptastjóri – stjórnendalausnir
Langar þig að hjálpa stjórnendum fyrirtækja að taka betri ákvarðanir með skýrari rekstrar- og fjárhagsupplýsingum?
Við hjá Advise leitum að reynslumiklum sérfræðingi sem hefur góðan skilning á rekstri og fjármálum fyrirtækja og nýtur þess að vinna náið með stjórnendum að innleiðingu, ráðgjöf og áframhaldandi þróun á notkun Advise.
Starfið er fjölbreytt og sameinar innleiðingu lausnarinnar, viðskiptaráðgjöf og áframhaldandi þróun á samstarfi við viðskiptavini. Þú tekur við nýjum viðskiptavinum eftir að söluferli lýkur, leiðir innleiðinguna frá upphafi til afhendingar og styður stjórnendur við að nýta lausnina sem best til að fá aukið virði úr mælaborðunum sínum.
Í starfinu vinnur þú náið með framkvæmdastjórum, fjármálastjórum og öðrum stjórnendum fyrirtækja. Þú kynnir þér rekstur þeirra og tryggir að rekstrar- og fjárhagsgögnin séu sett fram á skýran og hagnýtan hátt í stjórnendamælaborðum sem styðja betri ákvarðanatöku.
Þetta er lykilhlutverk í áframhaldandi uppbyggingu Advise. Þú berð ábyrgð á því að viðskiptavinir nái árangri með lausninni, fái sem mest virði úr henni og þrói notkun hennar til lengri tíma.
- Taka við nýjum viðskiptavinum eftir sölu og stýra innleiðingu frá upphafi til afhendingar
-
Greina þarfir fyrirtækja og hanna stjórnendamælaborð sem styðja rekstur þeirra.
-
Halda afhendingar- og kennslufundi með stjórnendum og öðrum notendum
-
Að hjálpa stjórnendum að nýta rekstrar- og fjárhagsgögn betur við ákvarðanatöku.
-
Byggja upp og viðhalda sterkum langtímasamböndum við viðskiptavini
-
Greina tækifæri til að auka virði viðskiptavina með nýjum lausnum, greiningum og ráðgjöf.
-
Selja og halda utan um ráðgjafarverkefni og aðra sérsniðna þjónustu
-
Fylgjast með notkun, ánægju og árangri viðskiptavina
-
Taka á móti flóknari þjónustumálum og tryggja skýra eftirfylgni
-
Vinna náið með sölu- og þróunarteymi Advise
-
Taka þátt í að þróa og bæta innleiðingar- og þjónustuferla
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði fjármála, rekstrar, viðskiptafræði, reikningshalds eða sambærilegra greina
-
Góður skilningur á rekstri fyrirtækja og fjárhagsupplýsingum
-
Geta til að lesa og greina rekstrarreikning, efnahag og helstu rekstrarmælikvarða.
-
Reynsla af ráðgjöf, viðskiptastýringu eða innleiðingu tæknilausna er kostur
-
Sterk samskipta- og þjónustulund
-
Skipulögð, sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð
-
Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
-
Gott tæknilæsi og áhugi á fjármálum, hugbúnaði og sjálfvirkni
-
Ábyrgðarmikið og fjölbreytt starf í vaxandi hugbúnaðarfyrirtæki
-
Tækifæri til að vinna náið með stjórnendum fjölbreyttra fyrirtækja
-
Mikið sjálfstæði og áhrif á þróun starfsins
-
Tækifæri til að móta þjónustu-, innleiðingar- og viðskiptastýringarferla
-
Öflugt samstarf við sölu-, ráðgjafar- og þróunarteymi
-
Sveigjanleika og góða vinnuaðstöðu á skrifstofu okkar við Dalveg 30A
-
Tækifæri til að vaxa með fyrirtækinu og taka að sér aukna ábyrgð
Advise þróar einfalda og notendavæna lausn sem hjálpar stjórnendum að fá skýrari yfirsýn yfir rekstur og fjárhag fyrirtækja.
Með sjálfvirkum tengingum við bókhalds- og viðskiptakerfi fá viðskiptavinir aðgang að stjórnendamælaborðum, rekstrar- og efnahagsgreiningum, sjóðstreymi, áætlunum, sölugreiningum og öðrum lykilupplýsingum á einum stað.
Markmið okkar er að draga úr handvirkri skýrslugerð og hjálpa stjórnendum að verja meiri tíma í að skilja tölurnar og taka betri ákvarðanir.
Advise er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki í örum vexti og þjónustar fjölbreytt fyrirtæki á Íslandi og öðrum Norðurlöndum. Við erum metnaðarfullt og samheldið teymi sem vinnur náið saman að því að þróa vöruna, bæta upplifun viðskiptavina og byggja upp öflugt fyrirtæki til framtíðar.
Starfið heyrir undir rekstrarstjóra Advise.
Íslenska
Enska










