

Verkefnistjóri leyfisveitinga
Skrifstofa stjórnsýslu og gæða óskar eftir að ráða í starf verkefnisstjóra við leyfisveitingar vegna afnota í borgarlandi.
Verkefnisstjóri leyfisveitinga verður hluti af teymi sérfræðinga sem vinnur markvisst að því að einfalda þjónustuferla í samræmi við stefnu umhverfis- og skipulagssviðs. Teymið ber meðal annars ábyrgð á útgáfu og eftirliti með afnotaleyfum á borgarlandinu, leyfisveitingum og eftirliti vegna götu- og torgsölu, gerð framkvæmdaheimilda, daglegu veghaldi, öryggismálum og vinnusvæðamerkingum.
Um er að ræða starf með krefjandi og áhugaverðum verkefnum í líflegu starfsumhverfi þar sem þjónustulund, liðsheild og samvinna eru lykilþættir í úrlausn fjölbreyttra verkefna. Boðið er upp á gott vinnuumhverfi á fjölskylduvænum vinnustað.
- Þátttaka í umbótarverkefnum og stefnu deildar í samráði við stjórnanda.
- Leyfisveitingar á borgarlandi vegna framkvæmda, viðburða, afnota eða götu- og torgsölu.
- Eftirlit, úttektir, upplýsingagjöf, ferlagerð og ráðgjöf vegna málaflokksins.
- Formleg og bein samskipti við íbúa, framkvæmda- ábyrgðar, og hagsmunaaðila.
- Yfirferð, umsagnir, vinnsla, eftirfylgni, skjölun og miðlun gagna er varða leyfisumsóknir og eftirlit.
- Eftirlit með vinnusvæðamerkingum og fræðsla til starfsmanna stofnunar, þjónustuþega sem og annarra hagaðila.
- Ýmis tilfallandi sérverkefni.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Skipulagsfærni og framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni.
- Ferla- og lausnarmiðuð hugsun og áhugi af verkefna- og umbótavinnu í teymum.
- Þekking af verkferlavinnu.
- Þekkingu á skipulags- og byggingalögum er kostur.
- Góð færni til að setja fram mál í ræðu og riti.
- Færni í notkun á algengum hugbúnaði sem tengist tækni- og skrifstofustörfum.
- Frumkvæði, þjónustulund og árangursdrifin hugsun.
- Íslenskukunnátta C1-C2 skv. og enskukunnátta B2-C1. í samræmi við samevrópska tungumálarammann
- Ökuréttindi.
Íslenska
Enska









