
Mosfellsbær
Mosfellsbær er sjöunda stærsta bæjarfélag á Íslandi með rúmlega 14.000 íbúa. Sveitarfélagið er staðsett í útjaðri höfuðborgarsvæðisins. Mosfellsbær byggir þjónustu sína á áhugasömu og hæfu starfsfólki sem hefur tækifæri til að rækta þekkingu sína og færni í jákvæðu starfsumhverfi. Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. Hjá Mosfellsbæ starfa um 1200 starfsmenn.
Fjölskylduvæn og sveigjanleg mannauðsstefna styður við þá hugmyndafræði að Mosfellsbær sé eftirsóknarverður vinnustaður þar sem atvinna og fjölskylduábyrgð fara saman. Mosfellsbær er heilsueflandi samfélag sem miðar að því að þróa samfélagslegan ramma utan um markvissa og heildræna heilsueflingu, en verkefninu er ætlað að ná til allra aldurshópa í samfélaginu, bæði íbúa og starfsmanna.

Verkefnastjóri byggingarmála
Mosfellsbær leitar að öflugum og lausnamiðuðum verkefnastjóra byggingarmála. Starfið er fjölbreytt og felur í sér byggingareftirlit, yfirferð umsókna og hönnunargagna, fasteignaskráningu og ráðgjöf til íbúa, hönnuða og annarra hagaðila.
Um starfið
Verkefnastjóri starfar undir stjórn byggingarfulltrúa og tekur þátt í að tryggja faglega, vandaða og skilvirka afgreiðslu byggingarmála. Starfið krefst góðrar þekkingar á mannvirkjagerð og laga- og reglugerðarumhverfi, mikillar nákvæmni og hæfni til að miðla upplýsingum skýrt til ólíkra hagaðila.
Við leitum að einstaklingi sem:
- vinnur sjálfstætt, skipulega og af nákvæmni,
- er lausnamiðaður, þjónustulipur og á auðvelt með samstarf,
- sýnir frumkvæði, fagmennsku og ábyrgð í störfum sínum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Byggingareftirlit á verkstað og framkvæmd úttekta.
- Yfirferð aðaluppdrátta, verkfræði- og séruppdrátta og annarra hönnunargagna í samráði við byggingarfulltrúa.
- Yfirferð og þáttaka í afgreiðslu umsókna og utanumhald rafrænnar byggingargáttar.
- Útgáfa vottorða vegna byggingarframkvæmda og skráningar mannvirkja.
- Fasteignaskráning, viðhald fasteignagjaldagrunns og samskipti við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og aðrar stofnanir sem koma að byggingarmálum.
- Umsjón og gerð lóða-, hæðar- og mæliblaða, og samráð vegna hæðarsetningar húsa og gatnahönnunar.
- Ráðgjöf og miðlun upplýsinga um byggingarmál til íbúa, hönnuða, starfsfólks bæjarins og annarra hagaðila.
- Skýrslugerð og aðkoma að skipulagsmálum, kortagrunnum og öðrum verkefnum sviðsins eftir því sem við á.
- Önnur verkefni að beiðni næsta yfirmanns.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í byggingafræði, arkitektúr, byggingarverkfræði eða byggingartæknifræði.
- Reynsla af hönnun, mannvirkjagerð og úttektum er skilyrði.
- Löggilding hönnuðar samkvæmt lögum um mannvirki er skilyrði.
- Starfsleyfi byggingastjóra samkvæmt lögum um mannvirki er stór kostur.
- Yfirgripsmikil þekking á lögum um mannvirki, byggingarreglugerð og tengdum stöðlum er skilyrði.
- Reynsla af verkefnastjórnun.
- Reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
- Þekking á rafrænni byggingargátt, skoðunarhandbókum og sérhæfðum upplýsingakerfum sveitarfélaga er kostur.
- Góð almenn tölvu- og tækniþekking og hæfni til að setja fram upplýsingar og gögn á skýran hátt.
- Mjög góð samskiptahæfni og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Auglýsing birt2. september 2026
Umsóknarfrestur14. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (8)

Verkefnistjóri leyfisveitinga
Umhverfis- og skipulagssvið

Sérfræðingur í vatnsmiðlum
EFLA hf

BIM-stjóri Nýs Landspítala ohf.
Nýr Landspítali ohf.

Skoðunarmaður – Raka og mygluskoðanir
MT Ísland

Verkefnastjóri framkvæmda (On-Site Engineering Manager)
Verne

Verkefnastjóri framkvæmda - hafnarmannvirki
Umhverfissvið

Verkefnastjóri þjónustusviðs (Viðhald og breytingar)
Atlas Verktakar ehf

Verkefnastjóri framkvæmda
Alva Capital ehf.