Arion banki
Arion banki
Arion banki

Teymisstjóri viðskiptaumsjónar

Við leitum að metnaðarfullum og drífandi leiðtoga í starf teymisstjóra lífeyrisþjónustu hjá Arion banka. Deildin er hluti af viðskiptaumsjón sem tilheyrir sviði reksturs og menningar.

Teymið ber ábyrgð á allri almennri þjónustu er varðar lífeyrismál viðskiptavina — bæði atvinnurekenda og sjóðfélaga — þ.m.t. skráningu, útgreiðslum, úrskurðum réttinda, innheimtu, uppgjöri og samskiptum við fjölda samstarfsaðila innan og utan bankans.

Starfsstöðvar teymisins eru bæði í Reykjavík og á Siglufirði, og felur starfið því í sér stjórnun teymis á tveimur starfsstöðvum.

Við bjóðum upp á krefjandi og fjölbreytt starf á traustum vinnustað þar sem tækifæri gefst til að takast á við fjölbreytt verkefni og vaxa í starfi. Um er að ræða spennandi tækifæri til að leiða öflugt og samhent teymi ásamt virkri þátttöku í þjónustuþróun. Starfsumhverfið einkennist af góðum starfsanda, metnaði og öflugri samvinnu þar sem lögð er rík áhersla á stöðugar umbætur, fagmennsku og framþróun.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun teymisins, mótun stefnu og yfirumsjón með verkefnum
  • Stuðla að góðri liðsheild, leiða þróun og vera öðrum hvatning til góðra verka
  • Vinna með öðrum sviðum bankans að því að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu
  • Ráðgjöf til aðila innan bankans um málefni sem tengjast verkefnum hópsins
  • Ábyrgð á að verklag sé kortlagt og endurskoðað ásamt þróun á kerfum og verkferlum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi leiðtogahæfni, drifkraftur og samskiptafærni
  • Reynsla af stjórnun eða geta til að leiða og leiðbeina starfsfólki
  • Skipulagshæfni, sjálfstæð vinnubrögð og gagnrýnin hugsun
  • Góð þekking á starfsemi og innviðum fjármálafyrirtækja; þekking á lífeyrismálum er kostur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku ásamt færni til að tjá sig í ræðu og riti
Auglýsing birt30. júní 2026
Umsóknarfrestur4. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Túngata 3, 580 Siglufjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar