Arion banki
Arion banki
Arion banki

Sérfræðingur í gervigreindarinnviðum

Við erum að byggja upp og þróa undirstöður gervigreindar Arion og leitum að einstaklingi sem vill vera í miðju þeirrar vegferðar. Viðkomandi mun tilheyra teymi sem vinnur að hönnun og uppbyggingu innviðanna sem munu keyra gervigreind áfram þvert á samstæðuna.

Um er að ræða þáttöku í verkefnum tengdum gögnum, bakenda og rekstri í umhverfi sem hreyfist hratt þar sem góð hönnun skiptir raunverulegu máli.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hönnun og smíði bakendakerfa, gagnavinnsla annarra innviða sem styðja við gervigreindar- og gagnaþróun þvert á bankann
  • Hönnun og viðhald bakendaþjónustu sem styður við fjölþátta (multi-agent) gervigreindarverkflæði
  • Vinna að MLOps — hjálpa til við að koma gervigreindarfulltrúum úr þróun yfir á raunumhverfi og tryggja rekstur þeirra
  • Þróa og samþætta gervigreindarþjónustur við núverandi kerfi
  • Starfa náið með vöruteymum víðs vegar um fyrirtækið
Menntunar- og hæfniskröfur
  • 3–5 ára reynsla af bakendaforritun, þróun gagnavinnsla eða skyldum sviðum
  • Góð færni í Python og SQL
  • Hagnýt reynsla af þróun gervigreyndarfulltrúa (AI agents) með stórum mállíkönum (LLM), þar á meðal Retrieval-Augmented Generation (RAG), með notkun tóla á borð við LangChain, LangGraph, Google ADK eða CrewAI
  • Hagnýt reynsla af því að hanna og reka flóknar gagnavinnslur
  • Góður skilningur á dreifðum kerfum (distributed systems) og kerfissamþættingu
  • Reynsla í að takast á við vandamál sem krefjast þess að læra nýja hluti
  • Þekking á samþættingu stórra mállíkana (LLM) eða nútímalegum gervigreindar-agents mynstrum (AI agent patterns) er mikill kostur
  • Við leitum að aðila sem sýnir ríka ábyrgðarkennd, fylgir verkefnum eftir og getur bæði unnið sjálfstætt og í teymum
Auglýsing birt18. júní 2026
Umsóknarfrestur30. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BakendaforritunPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.GervigreindPathCreated with Sketch.Hönnun gagnagrunnaPathCreated with Sketch.PythonPathCreated with Sketch.SQL
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar