
Dineout ehf.
Dineout ehf. er leiðandi hugbúnaðarhús með áherslur á lausnir fyrir veitingastaði, hótel og annan rekstur. Fyrirtækið var stofnað árið 2017 og hefur verið í miklum vexti síðan. Það samanstendur af þverfaglegu teymi forritara, verkfræðinga og sérfræðinga með mikla reynslu og þekkingu af daglegum rekstri veitingastaða.

Dineout leitar að öflugum framendaforritara
Dineout leitar að reyndum framendaforritara til að ganga til liðs við öflugt þróunarteymi fyrirtækisins. Við vinnum að lausnum sem einfalda rekstur og bæta upplifun veitingastaða, þjónustufyrirtækja og viðskiptavina þeirra. Stór hluti af því sem við byggjum eru ríkar og flóknar notendaupplifanir í vafranum — og því leitum við sérstaklega að öflugum framendaforritara. Það er kostur ef þú ert full stack og hefur einhverja þekkingu á bakendaþróun.
Ef þú hefur ástríðu fyrir vönduðum kóða, ert lausnamiðuð/lausnamiðaður og vilt hafa áhrif á hvernig nýjar lausnir verða til frá grunni, þá viljum við heyra frá þér.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða þróun á flóknum og umfangsmiklum framenda í React og TypeScript.
- Taka virkan þátt í þróun og viðhaldi núverandi kerfa Dineout og Sinna.
- Leiða þróun nýrra lausna í nánu samstarfi við vöru- og hönnunarteymi.
- Hjálpa til við að velja réttu tæknina fyrir hvert verkefni.
- Leiðbeina öðrum forriturum í teyminu og leggja af mörkum til tæknilegrar stefnumótunar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Að minnsta kosti 5 ára reynsla í hugbúnaðarþróun á atvinnumarkaði.
- Djúp reynsla af React og TypeScript í veflausnum, ásamt sannaðri getu til að smíða flókna og umfangsmikla framenda.
- Góður skilningur á nútíma framendaarkitektúr — t.d. íhlutahönnun (component design), umsýslu á flóknu stöðuhaldi (state management) og frammistöðu (performance) í stórum kerfum.
- Góð samskiptahæfni og geta til að vinna sjálfstætt sem og í teymi.
Auglýsing birt16. júní 2026
Umsóknarfrestur7. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (10)

Software developer (Python/Vue)
Ankeri Solutions

Software developer
Optitog ehf

Product Designer – Travel Product Team
Icelandair

Product Developer
AviLabs ehf.

Hugbúnaðarsérfræðingur
Avis og Budget

Backend Software Engineer
Asana

Engineering Manager, Development Infrastructure
Asana

Junior Software Engineer
Asana

Langar þig að vera AI Orchestrator
TACTICA

AI-first Full Stack Developer
TimeXtender