
Náttúruverndarstofnun
Náttúruverndarstofnun tók til starfa þann 1. janúar 2025 og tekur stofnunin við starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs og þeim hluta Umhverfisstofnunar er lýtur að náttúruvernd og lífríkis- og veiðistjórnun. Stofnunin fer með stjórnsýslu, eftirlit og önnur verkefni á sviði náttúruverndar og sjálfbærrar þróunar og friðlýstra svæða, vernd villtra fugla og spendýra og veiðistjórnunar. Þá sinnir stofnunin samhæfingu í skipulagi svæðisbundinnar stjórnunar og verndar og eftirliti á ofangreindum sviðum.
Svæðissérfræðingur á Norðausturlandi - aðstoðarþjóðgarðsvörður í Jökulsárgljúfrum
Náttúruverndarstofnun auglýsir laust til umsóknar starf svæðissérfræðings fyrir Norðausturland sem sinnir einnig starfi aðstoðarþjóðgarðsvarðar í Jökulsárgljúfrum í Vatnajökulsþjóðgarði. Svæðissérfræðingur gegnir hlutverki staðgengils þjóðgarðsvarðar og tekur virkan þátt í stjórnun og þróun svæðisins auk annarra friðlýstra svæða á Norðausturlandi. Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem vill nýta þekkingu sína og áhuga á náttúruvernd til að taka þátt í þróun náttúruverndar, samstarfi og þjónustu við gesti á svæðinu. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem frumkvæði og sjálfstæði fá að njóta sín. Starfsstöð er í Ásbyrgi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning landvörslu og annarra rekstrar- og mannauðsmála í umboði þjóðgarðsvarðar-svæðisstjóra á svæðinu
- Ber ábyrgð á móttöku, leiðsögn og þjálfun starfsfólks
- Ber ábyrgð á rekstri gestastofu, tjaldsvæðis og innkaupum
- Ber ábyrgð á gæða- og umhverfismálum svæðisins
- Leiðir fræðslumál svæðisins
- Tekur þátt í þróun og stefnumótun svæðisins og Náttúruverndarstofnunar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Mjög góð samskipta- og samstarfsfærni
- Geta til að þróa hugmyndir og verklag
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Áhugi og þekking á náttúruvernd og umhverfismálum
- Þekking á starfsemi þjóðgarða og friðlýstra svæða er kostur
- Þekking og reynsla af landvörslu er kostur
- Staðþekking á Norðausturlandi, einkum Jökulsárgljúfrum er kostur
- Góð þekking á íslensku og ensku
Auglýsing birt13. mars 2026
Umsóknarfrestur23. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Ásbyrgi 154070, 671 Kópasker
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Innkaupa- og aðfangastjóri
Baader Iceland

Viltu stýra ört stækkandi gagnaveri hjá spennandi alþjóðlegu fyrirtæki?
atNorth

Deildarstjóri dagdvala – almenn dagdvöl og sérhæfð dagþjálfun
Sóltún Sólvangi - hjúkrunarheimili

Deildarstjóri - Sóltún Heima
Sóltún Heima

Aðalhagfræðingur Samkeppniseftirlitsins
Samkeppniseftirlitið

Háskólamenntaður starfsmaður á erfða- og sameindalæknisfræðideild
Landspítali

Stjórnandi íþrótta og frístundamála
Fjarðabyggð

Hótelstjóri – 201 Hótel, Kópavogi
Flóra Hotels

Director Line Maintenance
Air Atlanta Icelandic

Reception Manager at Flóra Hotels
Flóra Hotels

Vöruflokkastjóri (Category Manager)
Bónus

Verkefnastjóri í endurheimt votlendis
Land og skógur