Land og skógur
Land og skógur

Verkefnastjóri í endurheimt votlendis

Land og skógur auglýsir eftir verkefnastjóra í umfangsmikið og spennandi verkefni við endurheimt votlendis á Vesturlandi sem er styrkt af Endangered Landscapes and Seascapse Programme (ELSP). Verkefnið er til eins árs.

Hlutverk verkefnastjóra er að vinna að undirbúningi endurheimtar votlendis sem felst fyrst og fremst í samskiptum og upplýsingargjöf til landeiganda og annarra hagaðila. Í verkefninu felst meðal annars vinna við skipulag og samskipti við aðra samstarfsaðila verkefnisins, umsjón með samskiptum og fræðslu til hagaðila auk skráningar og upplýsingagjafar um framgang og árangur verkefnisins.

Land og skógur er með starfstöðvar víða um land en viðkomandi verkefni eru á vesturlandi og því er æskilegt að umsækjandi verði með starfstöð á vestur- eða suðvesturlandi.

Land og skógur er þekkingar- og þjónustustofnun sem hefur það meginmarkmið að bæta gróður- og jarðvegsauðlindir þjóðarinnar, stuðla að sjálfbærri landnýtingu, vakta og hafa yfirsýn, draga úr losun og stuðla að bindingu kolefnis og virkja og fræða almenning og hagsmunaaðila um gróður- og jarðvegsvernd, sjálfbæra nýtingu lands, uppbyggingu og endurheimt vistkerfa, skóga og skógrækt. Stofnunin starfar samkvæmt lögum um landgræðslu nr. 155/2018 og lögum um skóga og skógrækt nr. 3/2019.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samskipti við hagaðila innan verkefnisins

  • Vinna við áætlanagerð og framkvæmd verkefnisins

  • Skráning og upplýsingagjöf um framgang og árangur verkefnisins

  • Fræðsla og ráðgjöf til hagaðila, svo sem landeiganda, sveitarstjórna, fyrirtækja, skóla og almennings

  • Önnur verkefni í samráði við samstarfsaðila verkefnisins og næsta yfirmann

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nám og/eða reynsla sem nýtist í starfi

  • Jákvæðni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg

  • Skipulag, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum er nauðsynlegt

  • Færni í að koma upplýsingum frá sér í ræðu og riti á íslensku er nauðsynleg

  • Færni í Office-forritum er nauðsynleg

  • Færni í notkun landupplýsingakerfa er kostur

  • Reynsla af verkefnastjórn, ráðgjöf og áætlanagerð er kostur

  • Ökuréttindi á fólksbifreið nauðsynleg

Auglýsing birt2. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar