
Samherji fiskeldi ehf.
Samherjji fiskeldi kemur að öllum stigum eldis og vinnslu, all frá hrognum til neytenda. Samherji fiskeldi ehf. rekur eina klakfiskastöð að Sigtúnum í Öxarfirði, eina klakstöð fyrir hrogn að Núpum í Ölfusi, þrjár seiðastöðvar og tvær áframeldisstöðvar fyrir bleikju, aðra á Stað við Grindavík og hina að Vatnsleysuströnd. Einnig rekur fyrirtækið eina strandeldistöð fyrir lax að Núpsmýri í Öxarfirði og tæknivædda vinnslu í Sandgerði. Allt eru þetta landeldisstöðvar sem nýta jarðvarma og notast við borholuvatn, ýmist ferskt eða ísalt, við framleiðslu á hágæða eldisfiski.
Sumarstarf í seiðaeldi
Leitast er eftir sumarstarfsmanni í seiðastöð að Núpum í Ölfusi.
Starfið felst í daglegri umhirðu seiða, eftirliti og öðrum tilfallandi verkefnum í stöðinni. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á fiskeldi, er ábyrgur og vandvirkur og getur unnið sjálfstætt. Mikilvægt er að viðkomandi hafi gott auga fyrir velferð og umhirðu dýra.
Reynsla og/eða menntun úr fiskeldi er kostur. Einnig er reynsla úr öðrum iðnaðargreinum metin til góðs.
Vinnutími er frá 08:00 til 16:00 alla virka daga.
Matur og gott kaffi er í boði á staðnum.
Samherji fiskeldi er í vexti og fram undan eru spennandi tímar í uppbyggingu og framleiðslu hjá fyrirtækinu.
Auglýsing birt20. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Núpar 5 171789, 816 Ölfus
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiVandvirkni
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Óska eftir að ráða inn handlaginn aðstoðarmann
NPA miðstöðin

Starfsfólk í loftstokkahreinsun
Hitatækni ehf

Tækjamenn – verkamenn í veitu verkefnum
ÍAV

Lagerstarfsmaður
ÍAV

Borgarnes: Sumarstarfsfólk óskast (Garbage collector/C Driver)
Íslenska gámafélagið ehf.

Garðyrkjustjóri í þjónustumiðstöðina
Vestmannaeyjabær

Óskum eftir starfsmanni á lager & frystir fyrirtækisins
Esja Gæðafæði

Þrif á baðstöðum - næturvinna
Vatn og tæki ehf

Sölufulltrúi í timbri og leigu (sumarstarf) - BYKO Suðurnesjum
Byko

Sölufulltrúi í lagnadeild (sumarstarf) - BYKO Suðurnesjum
Byko

Sumarstarf í skiltagerð
Fjölprent ehf

Garðyrkjustörf
G.A.P. sf