
Garðyrkjustjóri í þjónustumiðstöðina
Vestmannaeyjabær auglýsir laust til umsóknar starf garðyrkjustjóra í þjónustumiðstöðina. Um er að ræða 100 % starf sem unnið er á dagvinnutíma frá kl. 8 - 16 virka daga.
Leitað er að metnaðarfullum og drífandi aðila í starf garðyrkjustjóra sveitarfélagsins. Starfið felur í sér að móta ásýnd bæjarins, viðhalda grænum svæðum og stýra fjölbreyttum árstíðabundnum verkefnum utandyra sem innandyra.
Starfið er á umhverfis- og framkvæmdasviði með aðsetur í þjónustumiðstöðinni.
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsókn á Mínar síður. Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá með nöfnum tveggja umsagnaraðila. Einnig skal fylgja greinargerð með rökstuðningi fyrir hæfni í starfi og ástæðu umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl 2026. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Brynjar Ólafsson framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs [email protected].
Hvatning er til allra áhugasama einstaklinga, óháð kyni, til að sækja um starfið skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr 150/2020.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
-
Umsjón með uppbyggingu og viðhaldi opinna svæða innan bæjarlandsins.
-
Umsjón með sumarstörfum og vinnuskóla.
-
Umsjón og skipulag með gróðursetningu vor, sumar og haustblóma.
-
Gerð og uppfærsla umhirðuáætlana og eftirlit með umhirðuverkefnum.
-
Ráðgjöf til forstöðumanna stofnana bæjarins varðandi almenna umhirðu lóða, skipulag, gróður og annað sem að hans sérþekkingu lýtur.
-
Verkefni í þjónustumiðstöð utan annatíma garðyrkju eru verklegar framkvæmdir, aðgerðir vegna veðurs, almenn störf við viðhald, endurnýjun og umhirðu opinna svæða.
-
Garðyrkju- eða skrúðgarðyrkjumenntun.
-
Reynsla af sambærilegu starfi.
-
Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum og þjónustumiðað viðhorf.
-
Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni.
-
Reynsla af verkefnastjórnun er kostur.
Íslenska
Enska










